Innlent

Björgunarsveitarmenn reyna að moka sig í gegn

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Gríðarlega erfiðar aðstæður eru við Sveinsgil þar sem leit stendur yfir af manni sem féll þar í ánna.
Gríðarlega erfiðar aðstæður eru við Sveinsgil þar sem leit stendur yfir af manni sem féll þar í ánna. Mynd/LoftmyndirÞjóðskrá
Um 150 manns koma nú að leitinni að manninum sem féll í ánna í Sveinsgili fyrr í kvöld. Aðstæður eru afar erfiðar en mjög snjóþungt er á svæðinu.

Vinna björgunarsveitarmenn nú að því að moka sig í gegnum snjóbrúnna þar sem talið er að maðurinn sé en vinnst það hægt sökum gríðarlegs snjómagns. Nota björgunarsveitar menn meðal annars keðjusagir til þess að komast í gegnum snjóinn.

Leitarsvæðið er tiltölulega þröngt en farnar hafa verið ferðir upp og niður ánna og er því talið að maður sé undir snjóbrúnni.

Maðurinn var á ferð með öðrum manni og féllu þeir niður um mikla snjóbrú sem nær yfir ánna. Náðir annar þeirra að komast upp af sjálfsdáðum . Mennirnir eru erlendir ferðamenn.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og er enn á vettvangi og mun aðstoða björgunarsveitir og aðra viðbragðsaðila, meðal annars með því að ferja mannskap og búnað.

Einnig hafa kafarar frá Landhelgisgæslunni verið sendir á vettvang. Nokkuð erfitt fjarskiptasamband er á staðnum og töluverð snjóþyngsli auk þess sem veður hefur versnað með kvöldinu og er mikil rigning á svæðinu.


Tengdar fréttir

Féll niður um snjóbrú

Aðstæður eru nokkuð erfiðar í Sveinsgili en leitað er að manni sem féll í ánna fyrr í kvöld.

Féll í á við Sveinsgil

Björgunarsveitirnar frá Hellu að Kirkjubæjarklaustri voru kallaðar út vegna manns sem féll í á við Sveinsgil fyrr í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×