Innlent

Björgunarsveit aðstoðaði ferðafólk við Öskjuveg

Gissur Sigurðsson skrifar
Björgunarmenn drógu bílinn á þurrt og fluttu fólkið að Mývatni. Mynd úr safni.
Björgunarmenn drógu bílinn á þurrt og fluttu fólkið að Mývatni. Mynd úr safni. Vísir
Björgunarsveit var kölluð út í gærkvöldi til að aðstoða ferðafólk sem sat í föstum bíl sínum úti í Grafarlandaá við Öskjuveg.

Björgunarmenn drógu bílinn á þurrt og fluttu fólkið að Mývatni, þar sem það gisti í nótt, en bíllinn var skilinn eftir á árbakkanum þar sem hann var óökufær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×