Innlent

Björgun vegna samskiptaleysis í Nepal

Linda Blöndal skrifar
Gísli Rafn Ólafsson, yfirmaður neyðarmála hjá alþjóðlegum regnhlífasamtökum segir enn óljóst hverjar aðstæður eru í Nepal núna en bæði skortur á rafmagni og bensíni hamli fjarskiptum í landinu.

Stærstu regnhlífasamtök hjálparstofnanna

Gísli leggur af stað til Katmandu í Nepal í fyrramálið frá Dúbæ. Hann fer fyrir Samtökum sem nefnast Nethope og eru regnhlífasamtök fjörtíu og þriggja stærstu hjálparsamtaka í heimi, líkt og Sameinuðu þjóðanna, Rauða krossins, Barnaheill og SOS barnaþorpanna. Sett verður upp stjórnstöð í höfuðborginni til að byrja með. Nethope sinnir björgun hvað varðar fjarskipti á hamfarasvæðum. 



Óljóst um aðstæður

„Aðstæðurnar þarna úti er náttúrulega mjög slæmar en ástandið á svæðinu þar sem upptök skjálftans voru eru enn mjög óljóst. Það eru fjalladalir og svæði sem lítið hefur verið hægt að komast að enn sem komið er og það má búast við að einu leiðirnar til að komast þar að er með þyrlum", sagði Gísli í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.

Gísli sem leiddi meðal annars hóp hjálparstarfsmanna til Haíti eftir jarðskjálftann þar árið 2010 segir verkefnin snúast um að koma síma og netsambandið í lag til að greiða fyrir þeirri neyðarhjálp sem er í landinu.



Skortur veldur samskiptaleysi

„Það er að detta út símanetið, það er mikill rafmagnsskortur og skortur á eldsneyti til að halda því öllu gangandi.  Við munum setja upp gervihnattadiska og annað til að gefa hjálparstarfsmönnunum aðgang að netinu svo þeir geti til dæmis sent tölvupósta og aðrar upplýsingar af vettvangi og til stjórnstöðvanna í Katmandú og einnig til stjórnstöðva hjálparstofnanna út um allan heim", sagði Gísli. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×