Viðskipti erlent

Björgólfur Thor á lista Forbes yfir ríkustu menn í heimi

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Björgólfur Thor Björgólfsson
Björgólfur Thor Björgólfsson vísir/gva
Bill Gates, stofnandi Microsoft tölvurisans er enn eina ferðina í efsta sæti á lista Forbes tímaritsins um ríkustu menn jarðar. Björgólfur Thor Björgólfsson er á listanum en hann komst fyrst á listann árið 2005. Eftir hrun hvarf hann svo af honum en er nú aftur á listanum, þriðja árið í röð.

Samkvæmt úttektinni fjölgaði milljarðamæringum í dollurum talið í heiminum á síðasta ári um þrettán prósent og eru þeir nú 2043. Bill Gates er metinn á áttattíu og sex milljarða dollara og hefur auður hans aukist um ellefu milljarða dollara á einu ári. Í öðru sæti er fjárfestirinn Warren Buffet sem bætti sig um tæpa fimmtán milljarða og á alls rúma sjötíu og fimm milljarða.

Donald Trump Bandaríkjaforseti er á listanum en hann fellur þó töluvert á milli ára, eða um 220 sæti og hafnar í sæti númer 544. Hann þarf að gera sér að góðu að skrimta af þremur komma fimm milljörðum dollara.

Björgólf Thor Björgólfsson er einnig að finna á listanum en hann lendir í sæti númer 1161 og er metinn á 1,8 milljarða bandaríkjadala.

Í grein Forbes er farið yfir sögu Björgólfs sem var tíður gestur á téðum lista á árunum fyrir hrun. Hann hafi síðan næstum því misst aleiguna í hruninu en náð að vinna sig upp að nýju eftir að hafa gert flókna samninga við kröfuhafa sína. Í dag er pólska fjarskiptafyrirtækið Play sagt vera hans verðmætasta fjárfesting.

Í meðfylgjandi myndbandi frá Forbes má sjá þá sem verma tíu efstu sæti listans í ár.


Tengdar fréttir

Björgólfur fellur um 400 sæti hjá Forbes

Björgólfur Thor Björgólfsson hefur fallið um 400 sæti frá því í fyrra á lista Forbes yfir ríkustu menn heims, en tímaritið birti í gærkvöldi nýjan lista yfir einstaklinga sem taldir eru eiga yfir einn milljarð bandaríkjadala.

Björgólfur fellur á lista Forbes þrátt fyrir jafnmiklar eignir

Björgólfur Thor Björgólfsson athafnamaður er í 307. sæti á nýjum lista Forbes yfir ríkustu menn heims og nema eignir hans 3,5 milljörðum dollara, eða um 227 milljörðum króna. Hefur hann fallið úr 249. sæti eða um 58 sæti frá því í fyrra en þá voru eignir hans metnar jafnmiklar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×