Lífið

Bjóða upp á brúðkaupsferðir fyrir einhleypar konur

mynd/cerca travel
Ferðaskrifstofan Cerca Travelhefur að undanförnu boðið upp á ferðir sem sérstaklega eru ætlaðar konum sem ekki hafa fundið ástina. Ferðirnar eru auglýstar sem brúðkaupsferðir fyrir konur sem dreymt hafa um brúðkaupsdaginn, en hafa enn ekki fundið draumaprinsinn, „eða wannabe brides“ eins og það er orðað á enskri tungu. Kostnaðurinn er þó töluverður, eða um 330 þúsund krónur á „brúður“.

Um er að ræða tveggja daga ferð í Kyoto í Japan. Fyrsta daginn fær konan ráðgjöf í vali brúðarkjóla og fær að lokum að velja sér hvítan brúðarkjól eða hefðbundinn japanskan síðkjól. Um kvöldið er svo boðið upp á dýrindis kvöldverð, en hún hefur möguleika á að leigja sér brúðguma. Sá er innifalinn í verðinu. Seinni daginn fer hún í hárgreiðslu og förðun og í kjölfarið í myndatöku.

Ljósmyndari fylgir konunni hvert fótspor og festir allan undirbúninginn á filmu í myndbands- og ljósmyndaformi. Engin formleg gifting fer þó fram.

Tekið er sérstaklega fram að ferðin sé til þess fallin að auka sjálfstraust kvennanna, en í hana hafa þrjátíu konur skráð sig. Þær segja ferðina einstaka upplifun og mæla sterklega með henni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×