Innlent

Bjóða nám í byltingafræði

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Boðið verður upp á nám í byltingafræði og BA í miðlun og almannatengslum.
Boðið verður upp á nám í byltingafræði og BA í miðlun og almannatengslum. vísir/pjetur
Talsverð fjölgun umsókna var í grunnnám Háskólans á Bifröst, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá skólanum.

Þar segir líka að umsækjendum um háskólanám á Bifröst hafi fjölgað á hverju ári undanfarin tvö ár. Fjölgunin núna er mest í viðskiptalögfræði en sú nýbreytni verður tekin upp á komandi skólaári að boðið verður upp á viðskiptalögfræði í fjarnámi og einnig sem sérstök námsbraut með vinnu.

Einnig hefja tvær nýjar námsbrautir á félagsvísindasviði göngu sína í haust. BA í byltingafræði og BA í miðlun og almannatengslum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×