Innlent

Bjóða flóttafólki heim til Hóla

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Hluti Hólahópsins sem vill taka á móti flóttafólki. Frá vinstri Gylfi Jónsson, Broddi Reyr Hansen, Solveig Lára Guðmundsdóttir, Guðmundur Björn Eyþórsson, Guðrún Helgadóttir og Erla Björk Örnólfsdóttir.
Á myndina vantar Bjarna Kr. Kristjánsson, Hrönn Jónsdóttur og Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur.
Hluti Hólahópsins sem vill taka á móti flóttafólki. Frá vinstri Gylfi Jónsson, Broddi Reyr Hansen, Solveig Lára Guðmundsdóttir, Guðmundur Björn Eyþórsson, Guðrún Helgadóttir og Erla Björk Örnólfsdóttir. Á myndina vantar Bjarna Kr. Kristjánsson, Hrönn Jónsdóttur og Guðrúnu Þóru Gunnarsdóttur. Mynd/Laufey Haraldsdóttir
„Eitt föstudagssíðdegið sátum við Hólafólk saman og ræddum málefni líðandi stundar. Þá kom upp þessi hugmynd að það væri gaman að bjóðast til að taka á móti flóttafólki hér á Hólum,“ segir Guðmundur Björn Eyþórsson, íbúi á Hólum í Hjaltadal. 

Hópur íbúa á Hólum hefur sent sveitarstjóra Skagafjarðar bréf þar sem fagnað er ályktun bæjarráðs frá 3. september síðastliðnum þar sem sveitarstjóra er falið að kanna möguleika á að Skagafjörður taki á móti flóttafólki.

„Hólar hafa margt upp á að bjóða,“ segir Guðmundur. „Þetta er afar friðsælt samfélag og þetta er afar alþjóðlegt samfélag, hér eru margir Íslendingar auðvitað og allt að sextán þjóðerni yfir vetrartímann, nemendur í skólanum.“

Guðmundur segir samfélagið vel í stakk búið til að taka á móti fólki, þar sé nægt húsnæði og samfélagið sé afar fjölskylduvænt. 

Hópurinn sem undirritar bréfið vekur athygli á að á Hólum sé friðsælt og barnvænt samfélag en hugmyndin hafi verið kynnt fyrir félagasamtökum, leik- og grunnskólum á svæðinu við góðar undirtektir.

Guðmundur segir Hóla í Hjaltadal opið og fjölskylduvænt samfélag.Mynd/Guðmundur Björn
„Íslendingar hafa lýst því yfir að einstæðar mæður og hinsegin fólk eigi greiðasta leið til landsins og hvetjum við sveitarféalgið Skagafjörð að íhuga að bjóða flóttafólki búsetu á Hólum,“ segir í bréfi hópsins. Byggðaráð Skagafjarðar samþykkti að hafa erindið til hliðsjónar í málefnum flóttamanna. 

„Þetta yrði eflaust mikil áskorun en að sjálfsögðu áttum við okkur á því að hugur þarf að fylgja máli, það er ekki bara nóg að skrifa bréf,“ segir Guðmundur og bendir á að þó að atvinnutækifæri séu kannski ekki mörg séu Hólar kjörinn staður til að hjálpa flóttafólki að aðlaga sig íslensku samfélagi og hjálpa því að feta sig áfram eftir aðlögunartímann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×