Innlent

Bjóða enska landsliðinu í hvalaskoðun til að jafna sig eftir tapið gegn Íslendingum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Siglingin verður sárabót fyrir sært stolt Englendinga eftir tapið
Siglingin verður sárabót fyrir sært stolt Englendinga eftir tapið Mynd/Samsett
Starfsmenn hvalaskoðunarfyrirtækisins Norðursiglingar á Húsavík eru sigurvissir fyrir leik Íslands og Englands í 16-liða úrslitum Evrópumótsins í knattspyrnu í Frakklandi. Hafa þeir boðið öllum 23 leikmönnum enska liðsins í hvalaskoðun á Skjálfandaflóa eftir væntanlegt tap Englands gegn Íslandi á mánudaginn.

„Ég veit að Englendingar eru með frábært lið og munu spila sinn besta leik en miðað við hvernig íslenska liðið hefur spilað í undankeppninni og í lokakeppnini hafa þeir sýnt hvað í þeirra brjóstum býr og ég veit ég það að íslensku hjörtun fara langt með þetta,“ segir Guðbjartur Ellert Jónsson, framkvæmdastjóri Norðursiglingar.

Guðbjartur segir að siglingin verði sárabót fyrir sært stolt Englendinga eftir tapið en þeir geti hvort sem er ekki snúið aftur heim strax eftir leik enda yrðu fjölmargir aðdáendur Englands illa svekktir út í þá.

Miðarnir góðu.Mynd/Oddvar Haukur Árnason
„Aumingja ensku leikmennirnir muni ekki geta snúið aftur til Englands eftir leik enda verða 60 milljón stuðningsmenn þeirra brjálaðir eftir að hafa tapað fyrir lítilli eyju með aðeins 300 þúsund íbúa,“ segir Guðbjartur.

Bætir hann því við að það sé aðeins kurteisi og auðmýkt að bjóða enska liðinu heim til Íslands eftir háðulegt tap. Miðarnir sjálfir eru dagsettir þann 28. júlí næstkomandi og vonar Guðbjartur að leikmennirnir taki boðinu en þjálfaranum, Roy Hodgson og starfsliðinu, þar sem finna má meðal annars Gary Neville, sé einnig boðið.

„Við bjóðum þeim friðsælan dag í hvalaskoðun í Húsavík þar sem finna má fallega náttúru og indælt fólk. Það ætti að vera hinn fullkomna blanda til þess að jafna sig á tapinu,“ segir Guðbjartur.

Hvort að Englendingar þyggi boðið skal ósagt látið en einn stærsti fjölmiðill Bretlands, The Guardian hefur fjallað um boð Norðursiglingar til ensku leikmannanna.

Liðin mætast í Nice á mánudaginn. Gríðarleg eftirvænting er eftir leiknum en um þrjú þúsund Íslendingar verða á leiknum í Nice.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×