Viðskipti innlent

Bjartsýni á boðað frumvarp um höft

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Búast má við að Alþingi sitji lengur fram á sumarið en áætlað var þar sem fjármálaráðherra boðar frumvarp um afnám gjaldeyrishafta.
Búast má við að Alþingi sitji lengur fram á sumarið en áætlað var þar sem fjármálaráðherra boðar frumvarp um afnám gjaldeyrishafta. vísir/gva
„Það er klárlega fagnaðarefni að menn séu búnir að tilkynna um að þetta frumvarp birtist í næstu viku,“ segir Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, boðar að frumvarp um afnám hafta verði birt í næstu viku.

Frosti segist þokkalega bjartsýnn á frumvarpið.

„Stjórnvöld hafa talað fyrir því að horfa til heildarhagsmuna og vinna út frá því að allir sitji við sama borð, hverjir sem þeir eru,“ segir Frosti. Þetta eigi við um lífeyrissjóði, fyrirtæki, almenning, almenna fjárfesta og kröfuhafa. „Það teljum við vera rétta nálgun,“ bætir hann við.

Frosti segir Viðskiptaráð þó ekki geta spáð um útfærsluna á frumvarpinu frekar en aðra. „En ég myndi að minnsta kosti segja að við vonuðumst til að það verði stór skref stigin í þessu og framvindan verði hröð. Að við séum ekki að horfa á áætlanir um afnám í of mörgum skrefum eða yfir of langt tímabil,“ segir Frosti.

Heilt yfir og að því gefnu að frumvarpið sé trúverðugt þá segir Frosti að gera megi ráð fyrir að viðbrögðin verði frekar jákvæð en neikvæð.

Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.fréttablaðið/valli
„Út frá langtímasjónarmiðum, þá myndi ég telja að viðbrögðin yrðu ótvírætt jákvæð að því gefnu að þetta sé trúverðug áætlun. Út frá skammtímasjónarmiðum þá er auðvitað ákveðin óvissa út frá því hvernig spilast úr á vinnumarkaði,“ segir hann.

Að sögn Frosta er hagkerfið berskjaldaðra gagnvart óstöðugleika við afnám hafta. Þeim mun mikilvægara sé að sýna ábyrga hagstjórn.

„Það á við bæði um stjórnvöld, seðlabanka og aðila vinumarkaðarins. En fórnarkostnaðurinn við það að halda þessum höftum áfram er miklu hærri en sá kostnaður sem fælist í mögulegum tímabundnum óstöðugleika.“ 

Aftur á móti býst Frosti ekki við hruni íslensku krónunnar við afnámið.

„Nei, það þyrfti allavega að vera mjög ótrúverðugt frumvarp um afnám hafta og framtíðarframvindu til þess að það myndi valda hruni á gengi gjaldmiðilsins. Vegna þess að þegar við horfum á helstu hagstærðir og kringumstæður í hagkerfinu þá eru allar forsendur til að létta höftum,“ segir framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs Íslands.


Tengdar fréttir

Óvíst hve lengi þingið starfar

Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, segir að á þessari stundu sé ekki hægt að segja hversu lengi fram á sumarið þingið muni starfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×