Skoðun

Bjart er yfir betri Landspítala á betri stað

Guðjón Sigurbjartsson og Örn Þórðarson skrifar
Samtök um Betri spítala á betri stað (BS) lögðu í júní 2015 fram fjárhagslegan samanburð, yfirfarinn af KPMG, sem sýnir að það er um 100 milljörðum króna hagkvæmara að reisa nýjan spítala á besta mögulega stað en að byggja við og endurgera gamla spítalann á Hringbraut. Þetta eru góðar fréttir fyrir landsmenn því nýr spítali á besta stað verður augljóslega mun betri spítali bæði fyrir sjúklinga og starfsmenn til langrar framtíðar.

Viðhorfskönnun sem MMR gerði í ágúst síðastliðnum sýndi að einungis 38% landsmanna eru ánægð með að Landspítalinn rísi við Hringbraut. Samkvæmt nýjum óformlegum könnunum meðal lækna og sjúkraflutningamanna vilja um 85% að nýr spítali rísi á öðrum stað en Hringbraut.

Úrelt lög kveða á um að byggja skuli nýja Landspítalann við þann gamla á Hringbraut. Þau voru sett við aðrar aðstæður. Efnahagshrunið hafði fyrirgert getu ríkissjóðs til að fjármagna það verkefni og fjöldi heilbrigðisstarfsmanna fór utan til vinnu vegna launakjara og vinnuaðstöðu. Byggingaráformin voru því tónuð niður og þess freistað að laga þau að möguleikum ríkissjóðs. Ekki hefur ríkt einhugur um þau áform enda gallarnir við áformin augljósir.

Ný og bjartari framtíðarsýn blasir nú við. Fjárhagur ríkissjóðs er að taka stakkaskiptum og straumur ferðamanna ber með sér tekjur en kallar einnig á fjölgun gistirýma og veitingastaða, ekki síst í miðbæ Reykjavíkur. Nú er svo komið að spítalinn er í vegi fyrir æskilegri skipulagsþróun borgarinnar og skapar mikið álag á samgöngukerfið. Nú er líka ljóst að bæði er hagkvæmt og gott að spítalinn rísi á nýjum stað utan miðbæjarins nær þungamiðju byggðarinnar. Bent hefur verið á nokkra staði austar á höfuðborgarsvæðinu sem henta vel og bjóða upp á kyrrð og náttúrufegurð sem hjálpar til við bata sjúklinga.

Ráðgjafafyrirtækið KPMG gerði í sumar, að ósk NLSH ohf., úttekt á útreikningum Betri spítala og skilaði skýrslu sem túlkuð hefur verið þannig að hagkvæmast sé að byggja spítalann við Hringbraut. KPMG setur skýra fyrirvara og bendir á að forsendur skýrslunnar séu byggðar á óstaðfestum upplýsingum frá NLSH ohf. sem hefur þá afstöðu að byggja skuli við Hringbraut. Enda er ljóst að niðurstöður skýrslunnar eru á skjön við raunveruleikann og ómarktækar. Þar á ofan hefur skýrsla KPMG verið rangtúlkuð. Þeim sem áhuga hafa á að kynna sér skýrslu KPMG og athugasemdir BS við hana geta skoðað þessa slóð: https://betrispitali.is/upplysingar/skyrsla-kpmg/.

Borgar sig upp sjálfur

Rannsóknarstofnun atvinnulífsins við Háskólann á Bifröst skilaði í október síðastliðnum skýrslu sem unnin var fyrir Samtök atvinnulífsins og kallast „Landspítali, nýbyggingar og ólík rekstrarform“. Í skýrslunni eru meðal annars staðsetningarmál Landspítalans tekin fyrir. Þar er í meginatriðum tekið undir sjónarmið Betri spítala. Hagkvæmni þess að byggja nýjan spítala á besta stað er slík að hún réttlætir lántöku fyrir byggingarkostnaðinum til 40 ára með 3% vöxtum, en það gerir spítalabygging við Hringbraut ekki. Því má segja að nýr spítali á besta stað borgi sig upp sjálfur miðað við að byggja við gamla spítalann á Hringbraut.

Hagurinn af því að byggja nýjan spítala á betri stað er til langs tíma litið að minnsta kosti 100 milljarðar króna. Notendum spítalans mun stórfjölga næstu áratugi og verðmæti þess að hafa spítala í fremstu röð í heiminum sem mun geta stækkað eftir þörfum næstu áratugi verður vart metið til fjár.

Það mun einnig taka styttri tíma að byggja nýjan spítala á opnu aðgengilegu svæði en að bútasauma við Hringbraut þar sem meðal annars þarf að sprengja fyrir kjöllurum og tengigöngum inn á milli gömlu húsanna.

Með hagsmuni þjóðarinnar í fyrirrúmi þarf Alþingi að endurskoða lög um byggingu nýs Landspítala og að láta fara fram nýtt, opið og faglegt staðarval fyrir nýja Landspítalann.

www.betrispitali.is

https://www.facebook.com/betrilandspitaliabetristad







vísir/gva



Skoðun

Sjá meira


×