Innlent

Bjarni vísar því á bug að hann hafi setið á skýrslu um eignir Íslendinga á aflandssvæðum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Bjarni Benediktsson eftir fund sinn með þingflokknum í Valhöll í morgun.
Bjarni Benediktsson eftir fund sinn með þingflokknum í Valhöll í morgun. vísir/anton brink
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir það af og frá að hann hafi setið á skýrslu starfshóps sem kannaði umfang eigna Íslendinga á aflandssvæðum fram yfir kosningar. RÚV greinir frá.

Skýrslan var birt í gær en um þrír mánuðir eru frá því að starfshópurinn skilaði skýrslunni af sér. Stjórnmálamenn hafa gagnrýnt að skýrslan hafi ekki verið birt almenningi og Alþingi fyrr en eftir þingkosningar sem fóru fram í október. Bjarni gefur lítið fyrir slíka gagnrýni.

„Þeir sem eru reiðir eru pólitískir andstæðingar mínir fyrst og fremst. Formenn í stjórnmálaflokk, fyrrverandi formenn sem eru að reyna að gera sér pólitískan mat úr þessu,“ sagði Bjarni í samtali við RÚV.

Telur Bjarni að stór hluti kosningabaráttunnar fyrir kosningarnar í haust hafi snúið um aflandsfélög og Panama-skjölin og ekkert í skýrslunni sem um ræðir setji þau mál í nýtt ljós.

„Þetta er auðvitað allt saman tómur þvættingur og fyrirsláttur og ekkert nema pólitík,“ sagði Bjarni við RÚV.

Bjarni segir að hann hafi fengið skýrsluna í hendur eftir að þingi var slitið í haust og því hafi verið ákveðið að bíða fram yfir kosningar með birtingu skýrslunnar þannig að ný ríkisstjórn og ný efnahags- og viðskiptanefnd gæti fjallað um efni skýrslunnar.

Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar gæti mögulegt tap ríkisins vegna skattaundanskota numið allt frá 2,8 til 6,5 milljarða króna. Þá er einnig tekið fram í skýrslunni að eignir metnar á um 350 til 810 milljarða króna hafi safnast saman á aflandssvæðum frá árinu 1990.

Katrín Jakobsdóttir, formaður VG,  hefur farið fram á það að efnahags- og viðskiptanefnd þingsins komi saman í næstu viku til að fjalla um skýrsluna. Segir hún að spurningar hafi vaknað af hverju skýrslan hafi ekki verið birt fyrr og margt þurfi að skoða í framhaldinu. Bjarni vísar því þó á bug að hann hafi haldið skýrslunni leyndri fram yfir kosningar.

„Nei, ég vísa því algjörlega á bug að henni hafi með einhverjum hætti verið haldið leyndri. Það bara er ekki þannig,“ sagði Bjarni í samtali við RÚV.

 


Tengdar fréttir

Katrín óskar eftir fundi vegna skattaskjólsskýrslu

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, hefur farið fram á að efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis komi saman í næstu viku til að fjalla niðurstöður skýrslu starfshóps um eignir Íslendinga á aflandssvæðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×