Innlent

Bjarni talaði mjög fyrir breytingu á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Frá Valhöll þegar niðurstöður prófkjörsins voru kynntar.
Frá Valhöll þegar niðurstöður prófkjörsins voru kynntar. Vísir/Friðrik Þór
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og oddviti hans í Suðvesturkjördæmi talaði mjög fyrir breytingu á lista flokksins í kjördæminu á fundi kjördæmisráðs í gær. Þetta segir Bryndís Haraldsdóttir sem skipar annað sætið á lista flokksins en hún segir að sú breyting sem gerð var á listanum í gær hafi verið mjög óvænt.

Bryndís lenti í fimmta sæti í prófkjöri flokksins fyrr í mánuðinum en var færð upp í annað sætið á fundi kjördæmisráðs flokksins í gær. Í samtali við Vísi kveðst Bryndís hafa fengið að vita af breytingunni í gær og aðspurð segist hún ekki hafa gert kröfu um það að vera færð ofar á listanum.

„Ég var persónulega ánægð með árangur minn í prófkjörinu þar sem ég sóttist eftir fjórða sæti en lenti í því fimmta. En ég er sammála því að það var auðvitað áfall fyrir okkur hvað listinn var einsleitur eins og niðurstaðan var úr prófkjörinu og þetta er þá einhver leið til að bregðast við því.“

Bjarni skipar 1. sæti listans en þrír karlar, þar af tveir þingmenn flokksins, færast niður um eitt sæti á listanum við breytinguna. Þannig skipar Jón Gunnarsson nú þriðja sætið, Óli Björn Kárason er í fjórða sætið og Vilhjálmur Bjarnason í því fimmta.

Aðspurð hvernig stemningin hafi verið á fundinum og hvort samstaða hafi verið um þessar breytingar segir Bryndís:

„Það var mjög eindregin kosning með þessu en auðvitað skiptist fólk á skoðunum um málið. En formaður flokksins talaði líka mjög fyrir þessari breytingu.“

Það er engum ofsögum sagt að gustað hafi um Sjálfstæðisflokkinn síðustu vikur vegna stöðu kvenna í flokknum. Þannig sögðu nokkrar þungavigtarkonur sig úr Sjálfstæðisflokknum í liðinni viku, þar á meðal formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna.

En telur Bryndís að þessi breyting nú muni hafa einhver áhrif og jafnvel bæta ásýnd flokksins út á við?

„Ég treysti mér ekki til að segja til um það en þetta sýnir þó allavega að flokkurinn er tilbúinn að bregðast við aðstæðunum sem komu upp hjá okkur í prófkjörinu í Suðvesturkjördæmi og mér finnst það að mörgu leyti mjög kjörkuð niðurstaða og virðingarvert af þessum ágætu þingmönnum sem lentu í sætunum fyrir ofan mig að sætta sig við þessa tilfærslu. Þetta sýnir að flokkurinn er einhuga um það að konur eiga að veljast til jafns við karla í stöður innan flokksins.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×