Innlent

Bjarni segist bera traust til Illuga: Þingmaður VG segir ráðherrann hrekjast undan vindi

Þóra Kristín Ásgeirsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segist bera fullt traust til Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra þrátt fyrir fréttir um hagsmunatengsl hans og fyrirtækisins Orka Energy.

Svandís Svavarsdóttir þingmaður VG segir ráðherrann hrekjast undan vindi. Hann hafi ekki gert grein fyrir þessum hagsmunatengslum af eigin frumkvæði á sínum tíma. Hann hafi síðan sagt að hagsmunatengslununum væri lokið, en síðan hafi komið í ljós að persónulegir og fjárhagslegir hagsmunir séu viðvarandi. Það sé ámælisvert að hann hafi ekki gert grein fyrir því.

Illugi seldi fyrirtækinu OG Capital íbúð sína eftir að hafa tekið sæti sem menntamálaráðherra. OG Capital var í eigu Illuga árin 2011 og 2012 en er nú í eigu Hauks Harðarsonar stjórnarformanns Orka Energy. Illugi segir að íbúðasalan hafi verið vegna fjárhagserfiðleika en skömmu áður en kaupin gengu í gegn var var hann viðstaddur undirritun samnings milli Orku Energy og sveitarstjórnar Xianyang-héraðs á Hilton hotel í Reykjavík eða í í desember 2013.‘

Illugi vann ráðgjafarstörf fyrir Orku Energy á meðan hann var í leyfi frá þingstörfum en þeim störfum lauk árið 2012. Hlutverk Illuga var að koma fyrirtækinu í samband við fjárfesta í Suðaustur-Asíu.

Engum leigusamningi hefur verið þinglýst vegna leigu Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra, á Ránargötu 6a. Illugi segist hinsvegar á Facebook síðu sinni greiða 230 þúsund krónur í leigu á mánuði en íbúðin er tæpir 138 fermetrar.

Bjarni Benediktsson sagðist byggja sína skoðun á því sem fram hefði komið enda hefði hann enga forsendu til annars. Hann útilokaði þó ekki að málið yrði tekið upp á vettvangi flokksins. Illugi hafi sjálfur komið á framfæri upplýsingum til fjölmiðla hann muni líklega líka vilja gera það í þingflokknum. Hann hafi hinsvegar ekki verið á landinu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×