Innlent

Bjarni segir ummæli Eyglóar ódýrt tal

Gunnar Atli Gunnarsson skrifar
Fjármálaráðherra segir ummæli félagsmálaráðherra um að meira fé vanti til velferðarmála vera ódýrt tal og varla boðlegt inn í umræðu um slík mál. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins segir ráðherrann eiga að segja af sér en fjármálaráðherra segir ráðherrann á ábyrgð Framsóknarflokksins.

Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra sat hjá við atkvæðagreiðslu um fjármálastefnu og fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar á Alþingi í gær. Þá afstöðu rökstuddi hún með því að ekki væri hugað nægilega vel að lífeyrisþegum og barnafjölskyldum.

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa tekið þessar ákvörðun ráðherrans afar illa. Þannig lýsti Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, því yfir að henni fyndist Eygló eiga að segja af sér en Eygló segist ekki hafa íhugað afsögn.

Ríkisfjármálaáætlun snýr að næsta kjörtímabili

Hvernig getur þú setið í ríkisstjórn sem er ekki að sinna þessum hópum sem þú nefnir, barnafjölskyldur og lífeyrisþegar?

„Það hefur náttúrulega legið lengi fyrir þessi afstaða mín varðandi ríkisfjármálaáætlunina. Hún snýr að næsta kjörtímabili. Hún snýr að tímabili þar sem að væntanlega verður nýr stjórnarsáttmáli sem að mun liggja þá til forgrunns. Það hefur ekki verið samið um myndun neinnar nýrrar ríkisstjórnar þannig að ég starfa áfram á grundvelli núverandi stjórnarsáttmála,“ segir Eygló.

Varla boðlegt

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra segir þessa ákvörðun hafa komið á óvart. Sérstaklega í ljósi þess að á kjörtímabilinu hefði verið forgangsraðað meðal annars í þágu málaflokka sem Eygló ber ábyrgð á. Það sé einnig gert í fjármálaáætluninni.

„Þetta er bara svo ódýrt tal. Þetta er bara svo ódýr framsetning á málinu. Það verður þá að gera grein fyrir því af hverju á að taka, eða hvernig eigi að stórauka tekjurnar eða að hvaða leyti eigi að ganga á afgang í ríkisfjármálum. En að segja bara svona út í loftið að mönnum þyki að það þyrfti að koma meira, það finnst mér bara ekki, mér finnst það varla boðlegt inn í umræðu um jafn stórt mál eins og þetta,“ segir Bjarni.

Ekki gott fyrir samstarfið

Þú sem annar af forystumönnum þessarar ríkisstjórnar. Hvað afleiðingar hefur það fyrir ráðherra að standa ekki með svona málum?

„Það svo sem er ekkert gott fyrir samstarf í samsteypustjórn. Viðkomandi ráðherra er ekki á mína ábyrgð. Hann er auðvitað á ábyrgð Framsóknarflokksins og það er alfarið mál Framsóknarflokksins hvort að þeir kjósa að bregðast við þessu og ég ætla ekkert að segja þeim fyrir í því efni,“ segir Bjarni.

Hann segist ekki sjá fyrir sér langlífi nokkurrar ríkisstjórnar þar sem ráðherrar áskilja sér rétt til að sitja hjá í stórum málum. Hann efist þó um að þetta mál muni hafa miklar afleiðingar fyrir framhald ríkisstjórnarsamstarfsins.

„Mér sýnist að þetta séu kannski fyrstu merki þess sem að mögulega við fáum að sjá á næstu vikum. Að menn vilja svona skapa sér sérstöðu í aðdraganda kosninga, og það verður bara að koma í ljós hvernig það spilast frá viku til viku,“ segir Bjarni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×