Innlent

Bjarni segir snilli fyrri ríkisstjórnar að koma í ljós

Heimir Már Pétursson skrifar
Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra.
Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra. vísir/ernir
Forsætisráðherra segir að viðskipti með hlutabréf kaupþings í Arion banka sýni snildina í skilyrðum sem síðasta ríkisstjórn setti Kaupþingi, sem komi í veg fyrir að kröfuhafar komist með tugi milljarða úr landi með tilheyrandi áfalli fyrir krónuna.

Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins spurði Bjarna Benediktsson forsætisráðherra á Alþingi í morgun út í sölu Kaupþings á 29 prósenta hlut í Arion banka, en þeirra á meðal væru vogunarsjóðir sem almennt þættu kvikir fjárfestar.

Vitnaði Sigurður Ingi í forsætisráðherra um að þessi kaup væru til marks um traust á aðstæðum á Íslandi. Það væri athyglivert að forsætisráðherra teldi vogunarsjóði öfluga langtíma fjárfesta.

„Þá vil ég einnig ynna hann eftir því hvort hann telji það siðferðilega verjandi að einn af sjóðunum sem keypti Arion banka hafi orðið uppvís að stórfelldu misferli í Afríku og hafi þurft að greiða hundruð milljóna dala í sekt fyrir vikið og sé nú kominn með lánshæfismat í ruslflokk. Fyrir utan að vera með slóð eignarhalds upp á 17 prósent í Arion banka sem endar á Cayman eyjum, samkvæmt þeim opinberu upplýsngum sem eru tiltækar en eru þó litlar. Er forsætisráðherra sáttur við þetta fyrirkomulag,“ spurði Sigurður Ingi.

Forsætisráðherra sagði íslenska ríkið ekki vera að selja banka. Fyrri ríkisstjórn hefði hins vegar séð til þess að slitabú Kaupþings afhenti ríkinu skuldabréf upp á 84 milljarða. Þannig hafi verið komið í veg fyrir að þeir fjármunir rynnu út úr hagkerfinu með áfalli fyrir krónuna. Þá hafi verið séð fyrir að nýir eigendur bankans myndu leita nýrra fjárfesta.

„Ég vildi fagna hér í upphfi þessarar viku þegar það skref sem við sjáum nú skína í að það takist að skrá bankann og það horfir til þess í fyrsta skipti frá hruni að við fáum banka sem fær eitthvert framtíðar eignarhald. Háttvirtur þingmaður segir hér að ég hafi verið að fagna því að einhverjir tilteknir aðilar ætli að gerast kjölfestufjárfestar. Þetta er bara alrangt. Lögin gera ráð fyrir því að kjölfestufjárfestar séu þeir sem eru komnir yfir 10% og þeir munu þurfa að fara í gegnum nálarauga Fjármálaeftirlitsins, ekki satt,“ sagði Bjarni.

Hann treysti Fjármálaeftirlitinu til að skoða það mál.

„Það er rétt eins og kemur fram hjá hæstvirtum forsætisráðherra að við vildum ekki að allir þessir fjármunir renni út úr íslensku efnahagslífi. En er ekki akkúrat það sem er að gerast? Að vogunarsjóðirnir eru að ná í þessa fjármuni og fara með þá úr landi,“ spurði formaður Framsóknarflokksins.

„Það er misskilningur í gangi hér varðandi það að það séu meiri fjármunir að fara út úr landinu fyrir það að erlendir aðilar koma inn með nýtt fjármagn heldur en ella hefði verið. Þetta er einmitt öfugt. Það eru að koma nýir fjármunir inn sem losa um veð. Þetta er snilldin í þeim samningum sem síðasta ríkisstjórn gerði. Menn komast ekki undan þessu. Menn komast ekki undan skiyrðunum sem við settum,“ sagði Bjarni Benediktsson.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×