Innlent

Bjarni ræddi við Guðna í dag

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Bjarni Benediktsson og Guðni Th. Jóhannesson þegar forsetinn veitti stjórnarmyndunarumboðið.
Bjarni Benediktsson og Guðni Th. Jóhannesson þegar forsetinn veitti stjórnarmyndunarumboðið. vísir/eyþór
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, ræddi við Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, í síma í dag en ekki fást upplýsingar um hvað þeir ræddu.

Þegar Guðni veitti Bjarna stjórnarmyndunarumboðið síðastliðinn miðvikudag bað forsetinn hann um að vera í sambandi við sig um helgina eða í byrjun þessarar viku til að upplýsa um stöðu mála vegna komandi stjórnarmyndunarviðræðna.

Um helgina ræddu Bjarni, Óttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar og Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar saman.

Í samtali við Vísi segir Óttarr að þeir hafi ekki fundað, heldur bara „heyrst í raun og veru til þess að ræða að það væri ekkert sérstakt að frétta,“ eins og hann orðar það. Þá sagðist Óttarr ekki hafa rætt við forystufólk í öðrum flokkum um helgina.

Engar formlegar stjórnarmyndunarviðræður væru því hafnar.

Hvorki náðist í Bjarna Benediktsson né Benedikt Jóhannesson við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

Útilokar fjögurra flokka stjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn

Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar útilokar þátttöku í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum jafnvel þótt Björt framtíð yrði líka með í fjögurra flokka stjórn. Fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins telur besta kostinn fyrir þjóðina vera ríksstjórn sem felur í sér samstarf VG og Sjálfstæðisflokksins.

Benedikt segir Bjarna stýra dagskránni í bili

Bjarni Benediktsson fundaði með þingflokki sínum í gær. Hlé verður á viðræðum um helgina á meðan Bjarni hugsar um framhaldið. Hvorki Óttarr Proppé né Benedikt Jóhannesson funduðu með Bjarna í gær og eru ekki boðaðir á fund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×