Innlent

Bjarni fundaði með Viðreisn og Bjartri framtíð síðdegis

Heimir Már Pétursson skrifar
Ef formanni Sjálfstæðisflokksins tekst ekki að koma á formlegum stjórnarmyndunarviðræðum innan tæps sólarhrings er líklegt að hann skili umboði til myndunar ríkisstjórnar aftur til forseta á morgun. Formaður Bjartrar framtíðar segir nokkur grundvallarmál mikilvægari en sæti í ríkisstjórn.

Rúm vika er síðan Bjarni Benediktsson fékk umboð til stjórnarmyndunar frá forseta Íslands. Hann hefur eftir það átt óformlegar viðræður við forystufólk annarra stjórnmálaflokka sem enn sem komið er hafa ekki leitt til þess að fólk setjist niður til formlegra viðræðna.

Hins vegar ræddi Bjarni við forystumenn Viðreisnar og Bjartrar framtíðar nú síðdegis eftir sameignlegan þingflokksfund þeirra flokka síðdegis. Benedikt Jóhannesson formaður Viðreisnar segir enn engum dyrum hafa verið lokað og leiðtogarnir muni aftur ræðast við á morgun

Í hádegisfréttum Bylgjunnar sagði Óttarr Proppé formaður Bjartrar framtíðar að tiltekin málefni myndu ráða því hvort flokkurinn færi í ríkisstjórn.

„Það eru kannski ákveðin grundvallarmál. Eins og breytingar í sjávarútvegi og landbúnaði sem við höfum nefnt til. En líka til dæmis þjóðaratkvæðagreiðsla um að halda áfram umsóknarferli að ESB. Þannig að það eru nokkur veigamikil mál,“ segir formaður Bjartrar framtíðar.

Þetta eru allt mál sem gætu reynst flókin í viðræðum við Sjálfstæðisflokkinn, en Bjarni lýsti því til dæmis í upphafi síðasta kjörtímabils að þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald umsóknarviðræðna við Evrópusambandið fæli í sér pólitískan ómöguleika. Þá eru búvörusamningar sem Björt framtíð greiddi atkvæði á móti nýsamþykktir á Alþingi og Sjálfstæðismenn hafa ekki verið opnir fyrir hugmyndum um róttækar breytingar á gjaldtöku í fiskveiðikerfinu.

En það er fleira sem skiptir Bjarta framtíð og Viðreisn máli.

„En líka ákveðnar umbætur í vinnubrögðum og verklagi í pólitík sem skipta okkur meira máli en tilhugsunin um einhver ráðherrasæti,“ segir Óttarr Proppé.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×