Innlent

Bjarni Benediktsson: Finnst Píratar vera óskrifað blað

Jóhann Óli eiðsson skrifar
Bjarni Benediktsson segir að Hanna Birna þurfi endurnýjað umboð landsfundar.
Bjarni Benediktsson segir að Hanna Birna þurfi endurnýjað umboð landsfundar. vísir/pjetur
„Mér finnst enginn geta sett sig í það sæti að dæma aðra úr leik sem hafa sterkt lýðræðislegt umboð,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, í viðtali við DV í dag.

Bjarni segir að því sé ekki að leyna að honum finnist ákveðið rótleysi vera í kringum suma skipverja Pírata. Nefnir hann til dæmis að Birgitta Jónsdóttir hafi starfað með fjórum flokkum inn á þingi en hún var starfsmaður fyrir Vinstri græna áður en hún tók sæti á þingi. „Er einhver kjölfesta í þeim [Pírötum]? Mér finnst Píratar að stærstum hluta óskrifað blað.“

Sjálfstæðisflokkurinn átti sæmilegu gengi að fagna í sveitarstjórnarkosningunum í fyrra en niðurstaða þingkosninganna voru ákveðin vonbrigði fyrir flokkinn. Formaðurinn segir að lykillinn að auknu fylgi sé að ná að viðhalda þeirri miklu breidd sem einkennt hefur hann í gegnum tíðina.

„Hann [Sjálfstæðisflokkurinn] hefur náð yfir ólík sjónarmið en þó búið við skýr grunngildi og stefnumál. [...] En nákvæmlega á þessum tímamótum, sem við stöndum á í dag, verandi að koma út úr efnahagshruninu, tel ég að Sjálfstæðisflokkurinn þurfi að laga sig að breyttum veruleika með stefnumálin.“

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins fer fram eftir tvo mánuði og sækist Bjarni eftir því að vera formaður áfram. Hanna Birna Kristjánsdóttir er varaformaður flokksins en hún sagði af sér ráðherraembætti í kjölfar lekamálsins.

„Ég lít þannig á að það sé mikilvægt fyrir Hönnu Birnu að fá endurnýjað umboð frá þessum landsfundi,“ segir Bjarni. „Ég treysti mér vel til þess að vinna með henni áfram. Ég ætla hins vegar ekki að reyna að stýra því með einhverjum hætti hvernig fundurinn kemst að niðurstöðu um svona mál.“

Viðtalið í heild má lesa á DV.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×