Lífið

Bjarni Ben hefur ekki litað á sér hárið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bjarni hefur gránað töluvert síðustu ár.
Bjarni hefur gránað töluvert síðustu ár.
Hárlitur Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra hefur verið á milli tannanna á fólki í dag en hann þykir hafa gránað töluvert.

Í viðtali við RÚV í dag hafði háríð á Bjarna lýst töluvert, en fyrir fjórum dögum var forsætisráðherra vel dökkhærður.

Mikil umræða hefur komið upp um málið á samfélagsmiðlunum og velta margir því fyrir þessari breytingu á aðeins fjórum dögum. Sjálfur segist Bjarni, í samtali við Nútímann, hafa verið í klippingu og þá komi ávallt gráu hárin í ljós. 

Svanhildur Hólm Valsdóttir, aðstoðarmaður Bjarna, segir í samtali við RÚV að forsætisráðherrann hafi aldrei litað á sér hárið og Bjarni hefur sjálfur tjáð sig um málið á Twitter.

Hér að neðan má umræðuna á Twitter um stóra hármálið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×