Innlent

Bjarni Ben boðar 8,9 prósenta hækkun hjá öryrkjum og ellilífeyrisþegum

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Bjarni segir hækkun bóta verða á grundvelli launaþróunar á árinu.
Bjarni segir hækkun bóta verða á grundvelli launaþróunar á árinu. vísir/vilhelm
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að örorku- og ellilífeyrir muni hækka um 8,9 prósent fyrir árið 2016. Það verði gert á grundvelli þeirrar launaþróunar sem hafi verið á árinu og að frumvarp til hækkunar bóta verði lagt fram í september.

Frá þessu greinir Bjarni á Facebook-síðu sinni en hann segist reglulega fá spurningar um hve mikið bætur almannatrygginga, einkum elli- og örorkulífeyrir, muni hækka í kjölfar þeirra kjarasamninga sem gerðir hafa verið á árinu. Bjarni vísar í 69. grein laga um almannatryggingar þar sem segir að „bætur almannatrygginga (og tilteknar aðrar greiðslur og fjárhæðir) skuli breytast árl ega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skuli taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag.

Ég verð var við að margir spyrja hve mikið bætur almannatrygginga, einkum elli- og örorkulífeyrir, muni hækka í kjölfar...

Posted by Bjarni Benediktsson on 6. júlí 2015
Óttast að ráðherrann sé að „bulla“

Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingar, tjáir sig einnig um málið á Facebook. Þar furðar hún sig á því að tölur hans séu ekki í samræmi við ríkisfjármálaáætlun, sem samþykkt var á þingi fyrir nokkrum dögum en þar er gert ráð fyrir að hækkun bóta verði 3,5 prósent.

„En ef fjármálaráðherrann er ekki að bulla á facebooksíðu sinni telur hann sig allavega ekki vera bundinn áætlun um hækkun bóta almannatrygginga. En ætli hann sé bundinn af forsendunni um að skera niður í ríkisrekstri ef laun ríkisstarfsmanna fara yfir 2% umfram verðbólgu,“ skrifar Oddný og bætir við að hún bíði spennt eftir næstu Facebook-færslu.

Ætli facebooksíða fjármálaráðherra sé áreiðanlegri en ríkisfjármálaáætlun sem samþykkt var fyrir nokkrum dögum á þingi? ...

Posted by Oddný Harðardóttir on 6. júlí 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×