Íslenski boltinn

Bjarni: Gary Martin er ekki að fara neitt

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gary var ósáttur með hversu fá tækifæri hann fékk í byrjunarliði KR í sumar.
Gary var ósáttur með hversu fá tækifæri hann fékk í byrjunarliði KR í sumar. vísir/andri marinó
Gary Martin verður áfram í herbúðum KR á næsta tímabili. Þetta staðfesti Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, í samtali við Vísi í dag.

„Hún er mjög góð og hefur alltaf verið,“ sagði Bjarni, aðspurður um stöðuna á málum Martin sem lýsti margoft yfir óánægju sinni með lítinn spiltíma í sumar.

„Gary er feykilega öflugur leikmaður og stór hluti af þessum hóp og hann er ekki að fara neitt,“ bætti Bjarni við.

Sjá einnig: Indriði kominn heim í KR

Martin lék 15 deildarleiki með KR í sumar, þar af átta í byrjunarliði, og skoraði fimm mörk. Hann varð markakóngur Pepsi-deildarinnar 2014 þegar hann skoraði 13 mörk í 21 leik.

KR endaði í 3. sæti Pepsi-deildarinnar í sumar og komst í bikarúrslit þar sem liðið tapaði 2-0 fyrir Val.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×