Íslenski boltinn

Bjarni: Ekki verið að gera þetta neitt auðveldara fyrir okkur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
vísir/stefán
„Verkefninu er ekki lokið en vissulega líður okkur vel að vera komnir í úrslitin. Við eigum eftir stærsta skrefið en þetta var markmiðið okkar,“ sagði Bjarni Guðjónsson, þjálfari KR, hógvær eftir leikinn.

„Ég er alltaf stoltur af strákunum en þeir voru mjög flottir í dag. Við fórum að vinna í ákveðnum hlutum eftir að Breiðablik lagði rútunni hér á mánudaginn og hvernig við gætum brugðist við því. Okkur grunaði að ÍBV myndi reyna þetta líka en okkur tókst mun betur að leysa það í dag. Við notuðum breiddina vel, þótt við fengjum aðeins þrjár fyrirgjafir í fyrri hálfleik náum við að skora tvö mörk.“

Hólmbert Aron Friðjónsson nýtti tækifærið sitt í byrjunarliðinu vel en hann skoraði tvö mörk áður en hann var tekinn af velli þegar klukkustund var liðin af leiknum. Hefur mikil umræða skapast hver eigi að vera fremsti maður hjá KR en Bjarni hefur úr mörgum góðum kostum að velja.

„Þetta er jákvæður hausverkur að hafa úr svona mörgum góðum framherjum að velja. Hólmbert stóð sig vel, Almarr var flottur á kantinum og svo komu Gary, Þorsteinn og Sören vel inn af bekknum. Hópurinn okkar er þéttur og góður og við veljum besta liðið fyrir hvern leik“ sagði Bjarni sem sagði breytingarnar sjö sem hann gerði á byrjunarliði KR fyrir leikinn eiga sér skýringu.

„Við erum búnir að spila 9 leiki á 28 dögum á meðan Breiðablik er búið að spila þrjá og ÍBV 5. Við þurfum því að reyna að dreifa álaginu á leikmönnunum, Jónas Guðni gat ekki leikið í kvöld eftir leikinn á mánudaginn. Við báðum um að færa þennan leik og leika á morgun en það er ekkert verið að hjálpa okkur til þess að menn geti spilað.“

Bjarni var vongóður um að Stefán Logi Magnússon yrði með liðinu í næsta leik gegn Fjölni en hann meiddist í leik liðsins gegn Breiðablik á dögunum og gat ekki tekið þátt í kvöld.

„Hann fékk högg á legginn og hnéð í þeim leik og hann var ekki klár í þennan leik. Við vonumst til þess að hann verði klár í næsta leik, við vitum ekki hversu langan tíma þetta tekur en við vonumst til þess að hann geti verið með okkur á miðvikudaginn.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×