Sport

Bjarki Þór var gráti næst er hann fékk gullverðlaunin

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Bjarki Þór Pálsson.
Bjarki Þór Pálsson. Kjartan Páll Sæmundsson.
Bjarki Þór Pálsson keppti á dögunum á Evrópumótinu í MMA í Birmingham. Bjarki gerði sér lítið fyrir og sigraði stærsta flokkinn og tryggði sér Evrópumeistaratitilinn eftir fimm bardaga á fjórum dögum.

Mótið fór fram dagana 19. til 22. nóvember en þetta var í fyrsta sinn sem Evrópumótið var haldið. Mjölnir sendi átta keppendur á mótið og kom heim með tvenn gullverðlaun og eitt brons en Sunna Rannveig Davíðsdóttir varð einnig Evrópumeistari á mótinu.

Bjarki Þór átti frábæra frammistöðu á mótinu en hver var erfiðasti bardaginn og af hverju?

„Mér fannst annar bardaginn, gegn Ítalanum mjög erfiður. Hann var sterkur og sveiflaði höndunum eins og hann væri að taka skriðsund og ég fann mig ekki alveg í þeim bardaga. Ég var með fókusinn mikið á að ég þyrfti að taka tvo bardaga þann dag þannig að ég átti erfitt með að finna mig. Einnig var ég með áhyggjur af því að mæta einum Íra frá John Kavanagh í næsta bardaga. Hann var svo lítill og væskislegur og ungur og mig langaði bara ekki að lenda á móti honum. Mig langaði ekki að meiða hann. Það var eitthvað í hausnum á mér að flækjast fyrir,“ segir Bjarki Þór en hann þurfti að keppa tvo bardaga á öðrum degi mótsins.

„Í fimmta bardaganum var ég auðvitað orðinn mjög þreyttur. Líkaminn var hættur að hlýða öllum skipunum, var svolítið mikið eftir á í upphitun. Líkaminn var tregur til og sprengikrafturinn var farinn og ég fann hvað ég var svakalega þreyttur.“

Bjarki hefur áður talað um hve mikið hann hefur langað að keppa fyrir hönd Íslands og hafði það hvetjandi áhrif á hann þegar hann var orðinn þreyttur.

„Þjóðarstoltið hjálpaði mér gríðarlega. Ég elska Ísland og stuðningurinn sem ég fékk var geðveikur. Eftir hvern bardaga kíkti ég á Facebook og þar voru allir að hvetja mig áfram og ég bara klökknaði í hvert einasta skipti sem ég sá þetta. Síðan var ég með möntru í hausnum á mér, pain is temporary, glory is forever! Það var það sem ég mantraði, án djóks! Þetta var farið að verða erfitt þegar komið var að þriðja bardaganum. Þá er hætt við að maður geti orðið neikvæður og vildi ég passa mig á því. Ég sagði því bara við sjálfan mig ‘þetta er fyrsti bardaginn’ fyrir hvern bardaga.“

Þegar Bjarki fékk gullverðlaunin afhend var íslenski fáninn á skjánum og þjóðsöngurinn spilaður. Það hlítur að hafa kitlað þjóðarstoltið hjá Bjarka? „Jú algjörlega, það munaði litlu að ég hefði bara farið að hágráta. Ég var svo þakklátur og að heyra þjóðsönginn og með fánann, þetta var eitt besta augnablik lífs míns.“

Ítarlegra viðtal við Bjarka má lesa á vef MMA Frétta hér en þar talar hann m.a. um ruglið í fortíðinni og andlega erfiðleika.

MMA

Tengdar fréttir

Sunna Rannveig Evrópumeistari

Sunna Rannveig Davíðsdóttir bar sigur úr býtum á Evrópumeistaramóti áhugamanna í MMA.

Bjarki Þór Evrópumeistari

Bjarki Þór Pálsson var rétt í þessu að verða Evrópumeistari í MMA. Bjarki sigraði Búlgara eftir einróma dómaraákvörðun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×