Handbolti

Bjarki skoraði tíu í sigri Eisenach

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Bjarki skorar og skorar
Bjarki skorar og skorar vísir/aðsend
Bjarki Már Elísson heldur áfram að fara á kostum með Eisenach í næst efstu deild í þýska handboltanum. Hann skoraði tíu mörk þegar Eisenach lagði Nordhorn-Lingen 29-23 á útivelli í dag.

Nordhorn var yfir lengi framan af og var 16-12 yfir í hálfleik. Eisenach vann forystuna upp á fyrsta stundafjórðungi seinni hálfleiks og og náði mest sjö marka forystu seint í leiknum.

Bjarki átti sem fyrr segir stórleik fyrir Eisenach að vanda. Hannes Jón Jónsson leikur einnig með liðinu og skoraði 2 mörk í leiknum.

Á sama tíma atti Aue kappi við Bittenfeld en Rúnar Sigtryggsson þjálfari Aue. Bittenfeld er í öðru sæti deildarinnar og tryggði sér sigurinn með síðustu tveimur mörkum leiksins en leiknum lauk 24-22 á heimavelli Aue.

Hörður Sigþórsson skoraði 2 mörk fyrir Aue og Sigtryggur Rúnarsson eitt. Bjarki Már Gunnarsson leikur einnig með Aue líkt og Sveinbjörn Pétursson sem varði 4 skot í markinu samkvæmt heimasíðu deildarinnar.

Eisenach er í sjötta sæti með 27 stig og Aue í 10. sæti með 22 stig. Eisenach er sex stigum frá sæti í  úrvalsdeildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×