Sport

Bjarki Ómarsson setur stefnuna hátt

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Bjarki Ómarsson.
Bjarki Ómarsson. Jón Viðar Arnþórsson
Bjarki Ómarsson er 19 ára bardagamaður úr Mjölni. Hann þykir einn allra efnilegasti bardagamaður landsins en hann keppir sinn þriðja MMA bardaga í október.

Bjarki tapaði sínum fyrsta MMA bardaga en sigraði þann seinni með miklum yfirburðum fyrir um það bil ári síðan. Hann snýr aftur í búrið þann 19. október þar sem hann berst áhugamannabardaga í Englandi.

Þrátt fyrir ungan aldur setur hann stefnuna hátt. „Draumurinn er auðvitað komast í UFC og að geta lifað á þessu,“ segir Bjarki en hann hefur stundað íþróttina í tæp fjögur ár.

Bjarki berst í fjaðurvigt (66 kg flokkur) og hefur hug á að fara út til Dublin og Kaliforníu að æfa þar. „Ég hef verið að hugsa um að fara til Kaliforníu næsta sumar og fá að æfa með Team Alpha Male í mánuð eða svo,” en hjá Team Alpha Male æfa margir af bestu bardagamönnum heims í léttari þyngdarflokkunum. Í Dublin mun hann æfa með SBG sem er vinaklúbbur Mjölnis.

Bjarki er meðlimur í Keppnisliði Mjölnis en eins og kunnugt er æfði írska stórstjarnan Conor McGregor með þeim hér á landi fyrr í sumar. Hvernig er það fyrir Bjarka að æfa með mönnum eins og Conor og Gunnari Nelson? „Það er mjög gaman að sparra við Gunna, skemmtilegra heldur en á móti Conor. Conor fer aðeins fastar á meðan Gunni er ekki að reyna að rota mann. Það er samt frábær reynsla að æfa með Conor, þú færð ekki betri æfingarfélaga,” segir Bjarki en hann telur að bæði Gunnar og Conor fari alla leið og taki UFC-titil.

Bjarki Ómarsson er nafn sem Íslendingar ættu að leggja á minnið en hann hefur alla burði til að fara langt í íþróttinni. Ítarlegri viðtal við Bjarka má lesa á vef MMA Frétta hér.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×