Handbolti

Bjarki Már sterkur í sigri Berlin

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bjarki Már Elísson.
Bjarki Már Elísson. vísir/afp
Füchse Berlin kost í kvöld upp að hlið Rhein-Neckar Löwen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik.

Þá náðu Berlínarrefirnir að vinna fínan heimasigur, 27-24, á Wetzlar.

Berlin er reyndar búið að spila þrem leikjum meira en Löwen.

Bjarki Már Elísson var venju samkvæmt öflugur í liði Berlin en hann skoraði fimm mörk úr sex skotum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×