Handbolti

Bjarki Már með þrjú í sannfærandi sigri á Lemgo | Öll úrslit dagsins

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Bjarki Már Elísson, leikmaður Füsche Berlín.
Bjarki Már Elísson, leikmaður Füsche Berlín. Vísir/Getty
Bjarki Már Elísson og félagar í Füsche Berlin unnu sannfærandi tíu marka sigur á Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag en Refirnir skutust upp í 2. sæti deildarinnar með sigrinum.

Leikurinn fór fram á heimavelli Fusche Berlín og leiddu heimamenn með fimm mörkum í hálfleik í stöðunni 16-11.

Tókst þeim að bæta við forskotið strax í upphafi seinni hálfleiks og fór munurinn þegar mest var upp í þrettán mörk en leikmönnum Lemgo tókst að minnka muninn undir lok leiksins.

Bjarki Már komst á blað með þremur mörkum úr aðeins þremur skotum.

Lauk leiknum með öruggum sigri Füsche Berlin en næsti leikur liðsins er gegn Magdeburg á útivelli á föstudaginn.

Þá gerðu Gummersbach og Stuttgart jafntefli á heimavelli Stuttgart 37-37. Gunnar Steinn Jónsson, leikmaður Gummersbach, komst ekki á blað í leiknum.

Úrslit dagsins:

Fusche Berlin 37-27 Lemgo

Stuttgart 37-37 Gummersbach




Fleiri fréttir

Sjá meira


×