Handbolti

Bjarki Már með sjö mörk þegar Berlínarrefirnir fóru áfram

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bjarki og félagar eru komnir áfram.
Bjarki og félagar eru komnir áfram. vísir/getty
Bjarki Már Elísson skoraði sjö mörk þegar Füchse Berlín tryggði sig áfram í 16-liða úrslitum Evrópukeppninnar, en liðið sló út RK Gorenje Velenje frá Slóveníu.

Füchse vann samanlagt RK Gorenje Velenje, 56-58, en þeir töpuðu heimaleiknum í dag með þremur mörkum, 32-29, eftir að hafa unnið útileikinn 29-24.

Bjarki Már lék á alls odds og skoraði sjö mörk, en hann og Petar Nenadic skoruðu báðir sjö mörk. Hans Lindberg var markahæstur með níu mörk alls.

Erlingur Richardsson þjálfar lið Füchse.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×