Handbolti

Bjarki Már markahæstur í sigri

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bjarki Már fagnar marki.
Bjarki Már fagnar marki. Vísir/Aðsend
Bjarki Már Elísson var markahæstur í níu marka sigri ThSV Eisenach gegn HG Saarlouis, 39-30, en Bjarki skoraði níu mörk. Hannes Jón Jónsson skoraði eitt mark fyrir Eisenach sem er í sjöunda sæti deildarinnar.

Fannar Þór Friðgeirsson skoraði fjögur mörk í sigri Grosswallstadt gegn TSV Bayer Dormagen, en lokatölur urðu 33-29. Fannar Þór og félagar eru í sjötta sæti eftir sigurinn.

Sveinbjörn Pétursson varði sextán skot samkvæmt heimasíðu þýsku deildarinnar í stórsigri EHV Aue á Henstedt-Ulzburg, 34-20.

Hörður Fannar Sigþórsson skoraði tvö mörk og Bjarki Már Gunnarsson eitt fyrir Aue sem er í tíunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×