Handbolti

Bjarki Már framlengdi við Eisenach

Bjarki fagnar í leik með Eisenach.
Bjarki fagnar í leik með Eisenach.
Hornamaðurinn Bjarki Már Elísson verður áfram í herbúðum þýska félagsins Eisenach en hann skrifaði undir nýjan samning við félagið í dag.

Samningurinn er út næstu leiktíð. Bjarki Már hefur slegið í gegn á sínu fyrsta ári með félaginu og því kemur ekki á óvart að félagið hafi viljað framlengja við hann.

Eisenach er í næstneðsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og mun leika í B-deildinni næsta vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×