Enski boltinn

Bjarki Már: Þetta var ógeðslegt

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bjarki Már Elísson var svekktur eftir leik.
Bjarki Már Elísson var svekktur eftir leik. vísir
Bjarki Már Elísson, hornamaður íslenska landsliðsins í handbolta, átti stórleik eftir að hann kom inn á í seinni hálfleik á móti Makedóníu í lokaleik strákanna okkar í riðlakeppni HM 2017 í handbolta.

Bjarki Már skoraði sjö mörk úr níu skotum en það dugði ekki til því Ísland gerði jafntefli, 27-27, og mætir Frökkum í 16 liða úrslitum en ekki Noregi. Þeir komumst þó áfram.

Þetta var ógeðslegt. Við áttum að vinna þennan leik. Við fórum illa með forskotið sem við unnum okkur inn. Mér fannst þeir vera hættir,“ sagði Bjarki Már við Vísi eftir leikinn, en strákarnir okkar voru mest fimm mörkum yfir í seinni hálfleik.

„Við hleypum þeim inn í leikinn með því að fá tvisvar sinnum tvær mínútur, meðal annars ég fyrir heimskulegt brot. Svo vorum við að taka rangar ákvarðarnir og vorum ekki að sækja á markið.  Við fengum ekki 50-50 dóma og það voru margir hlutir sem sitja eftir hjá manni.“

Aðspurður hvort íslensku strákarnir hefðu ekki bara orðið stressaðir í sóknarleiknum undir lokin var Bjarki Már fljótur til svars:

„Ekki ég allavega. Ég á eftir að sjá leikinn aftur og þá kannski lítur það þannig út. Þetta var svekkjandi. Við erum ekki að ná að vinna þessa leiki sem við erum með eins og gegn Slóveníu, Túnis og núna,“ sagði Bjarki sem kom sjóðheitur til leiks eins og áður í mótinu.

„Þetta er bara handbolti. Ég spila fyrir framan níu þúsund manns í næstum því hverjum einasta leik þannig þetta er ekkert nýtt fyrir mér. Ég er hornamaður og verð því að vera kaldur og taka færin mín vel.“

Næsta verkefni er Frakkland í París.

„Það er eins gott að við fórum áfram því ég hefði líklega hringt mig veikann í Forsetabikarinn. Það verður bara gaman að mæta Frökkum. Við förum inn í þann leik með allt að vinna og engu að tapa. Það er gott að fara í svoleiðis leiki með enga pressu á bakinu,“ sagði Bjarki Már Elísson.


Tengdar fréttir

Umfjöllun: Makedónía - Ísland 27-27 | Strákarnir köstuðu frá sér sigrinum

Strákarnir okkar munu mæta Frökkum í Lille á laugardag en ekki Norðmönnum í Albertville eftir að hafa kastað frá sér sigri gegn Makedóníu. Algert hrun á lokamínútunum og liðið mátti jafnvel telja sig heppið að hafa sloppið með jafntefli. En liðið er komið áfram og á það var stefnt.

Aron Rafn: Þetta var skítt

Aron Rafn Eðvarðsson átti fína innkomu í íslenska markið gegn Makedóníu en það dugði ekki til.

Lino Cervar: Ég er með sterkt hjarta

Lino Cervar, þjálfari Makedóníu, var sáttur eftir jafntefli á móti Íslandi í Metz á HM í handbolta í kvöld en stigið tryggði Makedóníu þriðja sætið í riðlinum og forðaði þeim frá því að mæta Frökkum í sextán liða úrslitunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×