Íslenski boltinn

Bjarki: Ég og Arnar vorum of óþolinmóðir hjá Feyenoord

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Bjarki Gunnlaugsson var tolleraður eftir síðasta leik sinn fyrir FH.
Bjarki Gunnlaugsson var tolleraður eftir síðasta leik sinn fyrir FH. Vísir/Daníel
„Þetta er líf sem er frábært þegar vel gengur en þetta er líka líf sem er ekki eins skemmtilegt þegar illa gengur,“ sagði Bjarki Bergmann Gunnlaugsson, fyrrverandi atvinnumaður í knattspyrnu og núverandi umboðsmaður hjá Total Football, í samtali við Hjört Hjartarson í Akraborginni í gær.

Farið var yfir víðan völl enda hefur Bjarki kynnst ýmsu á ferli sínum.

„Það er erfitt að takast á við að fá ekki að spila og þú þarft að vera sterkur andlega enda færðu að heyra töluverða gagnrýni sem þú verður að geta þolað. Ég las blöðin úti þegar vel gekk en lét þau alveg vera þegar illa gekk,“ sagði Bjarki léttur.



Héldum að við værum fullmótaðir leikmenn
Arnar og Bjarki á sínum tímaMynd/Vísir
Bjarki telur að það sé auðveldara fyrir unga atvinnumenn að fara út í dag heldur en fyrir tuttugu árum.

„Þeir geta talað við eldri menn, fyrrum atvinnumenn og fengið ráð við ýmsum vandamálum sem koma upp. Hvort sem það er vegna meiðsla eða að fara og tala við þjálfarann um að fá fleiri mínútur þá hefur þetta afleiðingar,“ sagði Bjarki sem sagði að hann hefði haft gott af því sjálfur.

„Þetta getur haft afleiðingar. Við vorum of óþolinmóðir hjá Feyenoord og eftir á hyggja var þetta tóm froða af okkur hálfu. Ef að félagið sýnir manni traust og segir það í orðum þá áttu að þrauka. Við komum úr umhverfi þar sem miklar væntingar voru gerðar til okkar og við héldum fyrir vikið að við værum fullmótaðir leikmenn sem ýtti undir óþolinmæði af okkar hálfu.“



Vill gera leikmenn betri
Bjarki í leik með Preston.Vísir/Getty
Bjarki er í dag umboðsmaður hjá Total Football en hann segist vera að því til þess að reyna að hjálpa leikmönnum að verða betri.

„Umboðsmennskan sameinar allar hliðar fótboltans fyrir mig. Það er hægt að nýta reynsluna úr þjálfun, sem leikmaður og manni langar að gera leikmenn betri. Ég vildi fara út í þetta til þess, að geta gert leikmenn betri því að oft þarf bara smá til viðbótar til þess að leikmenn geti tekið næsta skref.“

Þá talar Bjarki um hugarfar ungra leikmanna ásamt því að ræða síðustu ár ferilsins hjá FH en viðtali má heyra í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×