Erlent

Bjargaði barni sem hékk á höfðinu út um glugga á fjórðu hæð

Samúel Karl Ólason skrifar
Wang Baocheng lagði líf sitt í hættu við að bjarga barninu.
Wang Baocheng lagði líf sitt í hættu við að bjarga barninu.
Myndband náðist af Wang Baocheng bjarga lífi ungs barns sem hékk út um glugga á fjórðu hæð í Kína. Stúlkan hafði verið skilin eftir ein heima og reyndi hún að klifra út um gluggann. Litlu munaði að hún hefði fallið, en höfuð hennar festist í rimlum sem voru fyrir utan gluggann.

Wang býr á hæðinni fyrir neðan og heyrði hann í stúlkunni. Á myndbandinu má sjá hvernig hann leggur líf sitt í hættu við að styðja við stúlkuna með kústi. Það gerði hann svo hún kafnaði ekki þar sem hún hékk í rimlunum.

Samkvæmt CCTV News var hurðin að íbúðinni þar sem stúlkan bjó læst. Því þurfti Wang að styðja við hana í meira en tíu mínútur, þar til foreldrar hennar komu heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×