Innlent

Bjargað af botni Árbæjarlaugar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Úr Árbæjarlaug.
Úr Árbæjarlaug. Vísir/Reykjavíkurborg
Tólf ára drengur slasaðist í Árbæjarlaug á sjöunda tímanum í kvöld. Drengurinn hafði rekið höfuðið í og vankaðist með þeim afleiðingum að hann lá stutta stund á botni laugarinnar.

Árvökulir sundlaugargestir sáu hvað gerðist og komu drengnum á sundlaugarbakkann. Sjúkraflutningamenn voru kallaðir út til að flytja hann undir læknishendur eftir atvikið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×