Innlent

Bitin af rottu þegar hún var á flótta með fjölskyldunni

Atli Ísleifsson skrifar
Biljana Boloban og Jovana Pavlovic komu báðar hingað til lands í kringum árið 2000 með fjölskyldum sínum sem flúðu þá stríðsástand á Balkanskaga.

Biljana og Jovana ræddu sögu sína í Íslandi í dag fyrr í kvöld og hvernig umræðan síðustu daga um flóttamenn hefur komið við þær.

Biljana var ásamt fjölskyldu sinni á ferðalagi í mörg ár, og sagði frá því meðal annars frá þeim aðstæðum sem hún bjó við.

„Við bjuggum stundum í herbergi, þar sem var bara jörð, það var ekki teppalagt og myglaðir veggir. Eina nóttina voru ég og systir mín sofandi, eins og hver önnur börn, og allt í einu vakna ég og það er rotta fyrir framan mig. Ég er enn þann dag í dag með ör eftir hana.“

Sjá má viðtalið við þær Biljönu og Jovönu í spilaranum að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×