Viðskipti erlent

Bitcoin ekki hærra í átján mánuði

Sæunn Gísladóttir skrifar
Gengi Bitcoin hefur verið á fleygiferð upp á við á síðustu dögum.
Gengi Bitcoin hefur verið á fleygiferð upp á við á síðustu dögum. Vísir/Getty
Gengi rafmyntarinnar Bitcoin fór yfir 460 dollara í dag, jafnvirði 57.500 íslenskra króna, og hefur ekki verið hærri í átján mánuði. Bitcoin hefur verið á fleygiferð upp á við á síðustu dögum.

Bitcoin fór á markað í byrjun árs 2009. Eftir erfiðleika á árinu 2014 þegar gengi þess féll um 57 prósent fór Bitcoin að blómstra á ný á síðasta ári. Bitcoin var þá árið 2015 nefnt besta mynt ársins og styrktist um tæplega fjörutíu prósent samanborið við gengi dollara. 

Þrátt fyrir hækkun á gengi telja sumir fjárfestar að Bitcoin sé metið allt of lágt og tala um að gengi myntarinnar ætti að vera nær 650 dollurum, eða 81 þúsund krónum.



 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×