Sport

Bisping má ekki berjast í hálft ár

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bisping verður lengi að jafna sig eftir bardagann gegn Henderson.
Bisping verður lengi að jafna sig eftir bardagann gegn Henderson. vísir/getty
Heimsmeistarinn í millivigt hjá UFC, Michael Bisping, hefur verið settur í langt frí af UFC enda fór hann illa út úr fyrstu titilvörn sinni.

Hinn 46 ára gamli Dan Henderson henti síðustu sprengjunum sínum í Bisping í Manchester á dögunum en það dugði ekki til.

Þó svo Henderson hefði slegið Bisping tvisvar sinnum niður með alvöru bombum þá náði Bisping að lifa af og klára bardagann. Hann vann á stigum.

Bisping var mjög illa farinn eftir bardagann og það sá varla á Henderson sem tapaði.

UFC hefur nú sett Bisping í hálfs árs bann vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í bardaganum þannig að hann ver ekki titil sinn á næstunni.

MMA

Tengdar fréttir

Michael Bisping varði titilinn á heimavelli

Michael Bisping er enn millivigtarmeistari UFC eftir frábæran bardaga gegn Dan Henderson. Bisping bar sigur úr býtum gegn Dan Henderson í aðalbardaga UFC 204.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×