Innlent

Biskup segir að samfélaginu beri að koma flóttamönnum til hjálpar

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Agnes M. Sigurðardóttir er biskup Íslands.
Agnes M. Sigurðardóttir er biskup Íslands. Vísir/Anton
„Ákall samfélagsins er skýrt varðandi neyð flóttamanna frá Sýrlandi. Okkur ber að koma til hjálpar. Undir það ákall tek ég.“ Þetta segir Agnes Sigurðardóttir biskup Íslands í tilkynningu.

„Jafnframt treysti ég á hið góða liðsinni Hjálparstarfs kirkjunnar og þá þekkingu sem þar hefur skapast til þess að leiða okkur áfram í aðstoð við flóttamenn. Í ágúst var birt ályktun frá Hjálparstarfi kirkjunnar um að evrópskt samfélag verði að bregðast við.“

Í ályktuninni kom fram að Evrópubúar séu í aðstöðu til að rétta hjálparhönd og að stjórnvöld megi ekki bregðast skyldu sinni til að virða rétt fólks til mannsæmandi lífs.

„Flóttamannavandinn er vandi okkar allra,“ skrifar biskup. „Til að mæta honum þurfum við heildarsýn og fagleg vinnubrögð. Fyrsta skrefið er að bjarga mannslífum. Síðan verðum við að styðja fjárhagslega og með sjálfboðavinnu þær stofnanir samfélagsins og félög sem sinna málaflokknum best.“

Kirkjan starfandi þar sem neyðin er stærst

„Hjálparstarf kirkjunnar er aðili að Alþjóðahjálparstarfi kirkna ACT - Alliance sem ásamt því að vinna að þróunarsamvinnu veitir neyðaraðstoð í kjölfar náttúruhamfara og vegna vopnaðra átaka.

Vísir/Getty
Aðstoðin er veitt án skilyrða og aðgreiningar og fer fram eftir alþjóðlegum stöðlum um neyðaraðstoð og ströngum siðareglum.

Hjálparstarf kirkjunnar veitir neyðaraðstoð vegna stríðsátaka á Sýrlandi í gegnum ATC þar sem leitast er við að uppfylla grunnþarfir hinna stríðshrjáðu.

Áhersla er lögð á vernd og aðstoð til handa konum og börnum á vergangi í landinu og flóttafólki í nágrannalöndunum,“ segir í tilkynningunni.

„Hér heima hefur prestur innflytjenda verið starfandi í þjóðkirkjunni um árabil. Séra Toshiki Toma þekkir vel aðstæður innflytjenda, flóttamanna, hælisleitenda og langtímagesta á Íslandi.

Hann veitir sálgæslu, skipuleggur námskeið, fræðslufundi, annast helgihald í samstarfi við sóknarkirkjur og fleira mætti nefna. Á Suðurnesjum hafa sóknir kirkjunnar í samstarfi  við fleiri aðila lagt lið flóttamönnum sem hingað koma.“

Biskup hvetur söfnuði Þjóðkirkjunnar til að efna til samskota

Síðar í þessum mánuði er aðalfundur Hjálparstarfs kirkjunnar. Þar verður flóttamannavandinn í heiminum gert að umfjöllunarefni. 22. október fer svo fram ráðstefna um málefni flóttamanna á vegum Kirkjunnar í samstarfi við Rauða kross Íslands og fleiri aðila.

Ennfremur hvetur biskup söfnuði Þjóðkirkjunnar að efna til samskota í kirkjum landsins sunnudaganna 13. september og 20. september nk. til stuðnings Hjálparstarfi kirkjunnar í starfsemi sinni innan ACT – Alliance á Sýrlandi og Jórdaníu.


Tengdar fréttir

Hvað kostar að taka á móti flóttamanni?

Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna móttöku flóttafólks geti numið á bilinu 4-5 milljónum króna á hvern einstakling miðað við fengna reynslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×