Bíó og sjónvarp

Birtu brot úr Íslandsþætti Kardashians

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Getty
Sjónvarpsstöðin E hefur birt fyrsta brotið úr Íslandsþætti Keeping up with the Kardashians, sem tekinn var upp í apríl. Þá kom stór hluti fjölskyldunnar hingað til lands ásamt upptökumönnum og vinum. Þar á meðal voru Kim Kardashian, Kanye West, Kourtney Kardashian og fleiri.

Í myndbandinu, sem er reyndar ekki tekið upp á Íslandi, er Scott Disick að hugsa um að fljúga til Íslands til að koma Kourtney Kardashian á óvart, en þau voru áður gift og eiga barn saman. Nútíminn benti fyrst á myndbandið.


Tengdar fréttir

Kardashian-systur tryggja sér Gyðjuúr

Kylie Jenner og Khloe Kardashian hafa keypt sér sín tvö úrin hvor úr nýjustu línu Gyðju Collection sem kom út fyrr í mánuðinum. Sofia Vergara bættist einnig í kúnna­hópinn í seinustu viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×