Innlent

Birta myndir í tilefni af þriggja ára afmæli Georgs prins

Atli Ísleifsson skrifar
Georg er þriggja ára í dag.
Georg er þriggja ára í dag. Mynd/Breska konungsfjölskyldan
Breska konungsfjölskyldan hefur látið birta fjórar myndir af Georgi prins í tilefni af þriggja ára afmæli hans.

Á myndunum má meðal annars sjá prinsinn að leik með hundi fjölskyldunnar Lupo en myndirnar eru teknar á heimili Vilhjálms prins og Katrínar, hertogaynju af Cambridge, í Norfolk.

Georg Alexander Louis kom í heiminn 22. júlí 2013, og er þriðji í röðinni til að erfa bresku krúnuna á eftir Karli afa sínum og Vilhjálmi föður sínum.

Ljósmyndarinn Matt Porteous tók myndirnar um miðjan mánuðinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×