Birta myndir frá manni sem var drepinn af birni Kjartan Atli Kjartansson skrifar 27. nóvember 2014 11:49 Hér má sjá nokkrar myndir sem fundust í síma mannsins.
Lögreglan í West Milford í New Jersey í Bandaríkjunum hefur nú birt myndir sem ungur maður tók rétt áður en skógarbjörn réðst hann í síðasta mánuði. Maðurinn, sem hét Darsh Patel og var tuttugu og tveggja ára, var staddur í skógi í norðurhluta New Jersey þegar björnin réðst á hann. Að sögn sérfræðinga er sjaldgæft að birnir ráðist svona á mannfólk. Patel var í göngu í skóginum ásamt fjórum vinum sínum þegar þeir sáu björninn. Patel tók myndir af hinum tæplega 150 kílóa birni þegar hann tók að nálgast. Patel og vinir hans reyndu að flýja björninn. Vinunum tókst það en ekki Patel. Lík hans fannst tveimur klukkustundum eftir árásina. Lögreglan fann farsíma mannsins á svæðinu og ákvað að birta myndirnar sem hann tók. Farsíminn var rispaður eftir tennur bjarnarins. Lögreglan vill vara fólk við því að nálgast skógarbirni. Þetta er fyrsta staðfesta tilfellið í sögu New Jerssey þar sem skógarbjörn er sagður hafa banað manni. Sextíu manns létust af völdum bjarna á síðustu öld í Bandaríkjunum. Patel missti annan skóinn þegar hann flúði björninn og vinir hans sáu síðast til hans þegar hann reyndi að klifra upp brekku með björninn á eftir sér. Hann kallaði á vini sína og sagði þeim að halda áfram að hlaupa frá birninum, sem þeir og gerðu auk þess að hringja í neyðarlínuna. Lögreglumenn komu á staðinn, en það var um seinan. Þeir fundu björninn og skutu hann. Í maga hans fundust leyfar af Patel. Hér að neðan má sjá myndirnar sem Patel tók á símann sinn og sjónvarpsfrétt um málið.
Mest lesið Meðvirkni í garð Katrínar að tjá sig ekki um hana Innlent Tók upp þegar hann nauðgaði kærustu sinni í tvígang Innlent „Aldeilis hlessa“ á auknum viðbúnaði vegna mögulegs goss Innlent Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Erlent Getur gosið hvenær sem er Innlent Fluttir á sjúkrahús eftir hópslagsmál í miðborginni Innlent Að taka afstöðu er einkamál hvers og eins Innlent Sprengjuhótun í Billund Erlent Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna Innlent Pollrólegur í viðtali í 45 metra hæð yfir borginni Innlent Fleiri fréttir Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Segjast hafa skotið niður dýrmæta sprengjuflugvél Handtekinn í tengslum við áform um að ráða Selenskí af dögum Ísraelar gera árás á Íran Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Bandaríkin stöðvuðu fulla aðild Palestínumanna að SÞ Hrunið í gömlu kauphöllinni heldur áfram Afsalta sjó til drykkjar í þurrki í Barcelona Eiginmaður Sturgeon ákærður fyrir fjárdrátt Mega koma til að snæða í Grindavík en aðeins í rútu Johnson í erfiðri stöðu Hafa vitneskju um mögulegan dvalarstað Íslendings sem flýr réttvísina Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Mikill mannskaði eftir sögulegt úrhelli í eyðimörkinni Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Sendi ösku í allt að þriggja kílómetra hæð Ákærður fyrir að nota slagorð SS-sveitanna á fjöldafundi Stjórnvöld í Katar að endurskoða sáttasemjarahlutverk sitt Réði lífvörð eftir árásina á bandamann Navalnís Borgarstjóri sakaður um brot gegn dóttur sinni Hæsta vindmylla heims á landi reist í Danmörku Þingforsetinn segist ekki ætla að fara fet Ísraelar sagðir búnir að ákveða að svara fyrir sig Boðflennusæfíll hrellir Kanadamenn Sjá meira