Fótbolti

Birkir og félagar komu til baka og héldu toppsætinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birkir Bjarnason var í byrjunarliðinu í kvöld.
Birkir Bjarnason var í byrjunarliðinu í kvöld. vísir/getty

Birkir Bjarnason og félagar hans í svissneska liðinu Basel gerðu 2-2 jafntefli við Fiorentina í I-riðli Evrópudeildarinnar í kvöld.

Það blés ekki byrlega fyrir heimamenn í Basel því Federico Bernardeschi skoraði á 23. og 36. mínútu og kom gestunum í 2-0.

Á milli markanna fékk Facundo Sebastian Roncaglia beint rautt spjald og það átti eftir að kosta Fiorentina dýrmætan sigur.

Manni fleiri minnkaði Basel muninn með marki Marek Suchy á 40. mínútu og bjargaði stigi með jöfnunarmarki á 74. mínútu, en það mark skoraði Mohamed El Nenny. Lokatölur, 2-2.

Jafnteflið tryggði Basel áfram og heldur Fiorentina þremur stigum frá sér, en ítalska liðið er í öðru sæti með sjö stig. Með jafntefli í lokaumferðinni gulltryggir Basel sér efsta sætið í I-riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×