Fótbolti

Birkir og félagar í góðum málum í umspilinu

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Birkir Bjarnason skoraði tíu mörk í B-deildinni.
Birkir Bjarnason skoraði tíu mörk í B-deildinni. vísir/getty
Birkir Bjarnason og félagar hans í Pescara færast nær sæti í ítölsku A-deildinni.

Þeir unnu Vincenza, 1-0, í fyrri leik liðanna í undanúrslitum umspilsins á heimavelli í dag, en í hinu einvíginu mætast Bologna og Avellino.

Markalaust var fram á 86. mínútu þegar Albaninn Ledian Memushaj skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu.

Í aðdraganda hennar var Mauro Vigorito, markvörður Vicenza, rekinn af velli og missir hann því af seinni leiknum sem fram fer á þriðjudagskvöldið.

Pescara hafnaði í sjöunda sæti B-deildarinnar en Vicenza þriðja sæti. Carpi og Frosinone höfnuðu í efstu tveimur sætunum og spila í A-deildinni á næstu leiktíð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×