Íslenski boltinn

Birkir Már vanur rigningunni | Blautt á fyrstu æfingunni í Amsterdam

Óskar Ófeigur Jónsson í Amsterdam skrifar
Birkir Már Sævarsson fagnar marki Eiðs Smára Guðjohnsen á móti Kasakstan í mars.
Birkir Már Sævarsson fagnar marki Eiðs Smára Guðjohnsen á móti Kasakstan í mars. Vísir/AFP
Mikil rigning tók á móti íslensku landsliðsstrákunum þegar þeir mættu á sína fyrstu æfingu í Amsterdam í dag en framundan er leikur á móti Hollandi í undankeppni EM á fimmtudagskvöldið.

Birkir Már Sævarsson flaug til Amsterdam frá Stokkhólmi í Svíþjóð þar sem hann er á sínu fyrsta tímabili með Hammarby IF.

„Það er gaman að hitta strákana eins og alltaf. Við hlökkum til leiksins," segir Birkir Már.

Íslenska liðið lenti í helli dembu á fyrstu æfingu sinni í dag og það mátti meðal annars heyra í þrumum í nágrenninu á meðan æfingunni stóð.

„Þetta var vissulega svolítið blaut æfing en ég er vanur því frá Bergen," sagði Birkir Már sem spilaði þá með Brann í norsku úrvalsdeildinni. Hann segist því hafa  mætt á ófáar æfingarnar í rigningu.

„Ég var í sex ár í Bergen þar sem rigndi á hverjum degi og ég er því vanur þessum aðstæðum," sagði Birkir í léttum tón.

Íslenska liðið æfði í tveimur hlutum í dag þar sem leikmennirnir sem spiluðu á sunnudag tóku mun rólegri æfingu en hinir.

„Menn vöknuðu snemma og voru að ferðast í dag. Þessi æfing snérist því aðallega um það að koma sér í gang," sagði Birkir Már.

Liðið æfir aftur á morgun og hver veit nema að sólin skíni á strákana þá.  Spáin er að minnsta kosti hagstæðari fyrir þá sem vilja ekki gegnblotna aftur eins og í dag.


Tengdar fréttir

Lars: Alltaf slæmt að missa góða leikmenn

Landsliðsþjálfarinn var að vonum svekktur eftir að í ljós kom að Emil Hallfreðsson getur ekki tekið þátt í leik liðsins gegn Hollandi á fimmtudaginn.

„Verðum að notfæra okkur að pressan er á þá“

Birkir Bjarnason, hárprúði kantmaður landsliðsins, segir að á góðum degi geti okkar menn lagt hvaða þjóð sem er að velli. Pressan sé á Hollendingum fyrir leikinn á fimmtudag í A-riðli undankeppni EM 2016.

Landsliðið græddi á klúbbsreglunni í Cardiff City

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í fótbolta, segist vera mjög bjartsýnn að geta spilað á móti Hollandi á fimmtudaginn kemur. Aron Einar æfði með íslenska liðinu í dag og góð hvíld frá helginni kom þar sterk inn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×