Fótbolti

Birkir Már: Ég held að Robben muni ekkert eftir mér

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Birkir Már Sævarsson mætir hér á æfingu í dag.
Birkir Már Sævarsson mætir hér á æfingu í dag. Vísir/ÓskarÓ
Birkir Már Sævarsson hefur verið fastamaður í hægri bakverðinum í síðustu leikjum Íslands í undankeppni EM 2016 og það eru góðar líkur á að svo verði áfram á móti Hollandi á fimmtudaginn.

„Það verða allir í hópnum að vera klárir því það eru ekki bara ellefu manns sem munu koma okkur á EM. Það verða 20 plús leikmenn sem koma okkur alla leið," segir Birkir Már Sævarsson í viðtali við Vísi.

Hollendingar eru bara í þriðja sæti riðilsins eftir fyrstu sex umferðirnar og verða því að fá þrjú stig.

„Þetta er gott lið sem við erum að fara að mæta en við erum búnir að sýna það áður að við getum unnið þessi svokölluðu stóru lið líka. Ef allir leggja sig hundrað prósent fram þá ætti þetta að ganga vel," segir Birkir.

Birkir Már kom inn á í hálfleik í fyrri leiknum og var þá settur í vinstri bakvörðinn til höfuðs Arjen Robben. Birkir Már er vanari því að spila hægri bakvörðinn.

„Það var óvænt og líka að koma inn í stöðu sem ég er ekki vanur að spila. Það gekk ágætlega. Ég fékk bara mín fyrirmæli og fór vel eftir þeim sem var að stoppa Robben," segir Birkir Már en ætli nýorðinn fyrirliði Hollendinga, Arjen Robben, muni vel efir Birki Má frá fyrri leiknum.

„Nei, ætli hann muni nokkuð eftir mér en hann á örugglega ekkert sérstaklega góða minningar frá Laugardalsvelli," segir Birkir í léttum tón.

„Það væri stórbrotið að ná í þrjú stig en ég held að við sættum okkur alveg við það ef að það færi þannig að við fengjum eitt stig. Það væri ekkert til að grenja yfir. Við sjáum til hvernig þetta byrjar. Þeir vilja örugglega ná marki snemma og eiga eftir að koma 110 prósent í byrjun leiks til að ná þessu marki snemma," segir Birkir.

„Þeir hljóta að vera búnir að fara vel yfir það sem gerðist í fyrri leiknum á móti okkur og vita hvað þeir gerðu vitlaust þar og hvað þeir ætla að gera betur. Það er bara okkar að koma í veg fyrir það," segir Birkir.

„Ég held að allur hópurinn þroskist með hverjum leiknum. Allir þessir strákar sem komu upp í síðustu keppni eru orðnir nánast heimsklassa leikmenn margir hverjir. Þetta lítur því vel út hjá okkur," segir Birkir Már sem er klár í slaginn á Amsterdam Arena á fimmtudagskvöldið.


Tengdar fréttir

Birkir Bjarna bætir við sig fimmta tungumálinu

Birkir Bjarnason segir að honum líki lífið vel í Sviss eftir flutningana frá Ítalíu í sumar. Birkir leikur með Basel sem hefur farið vel af stað í deildinni þótt liðinu hafi skrikað fótur í forkeppni Meistaradeildar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×