Fótbolti

Birkir byrjaði í Búlgaríu | Öll úrslit kvöldsins

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Birkir í baráttunni í leiknum í kvöld.
Birkir í baráttunni í leiknum í kvöld. vísir/epa
Átta leikir fóru fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Basel sem gerði markalaust jafntefli við Ludogorets á útivelli í A-riðli. Birkir var tekinn af velli þegar fimm mínútur voru til leiksloka.

Basel er í fjórða og neðsta sæti riðilsins og þarf að ná betri úrslitum en Ludogorets í lokaumferð riðlakeppninnar til að komast í Evrópudeildina eftir áramót.

Í hinum leik riðilsins gerðu Arsenal og Paris Saint-Germain 2-2 jafntefli á Emirates vellinum.

Bæði Arsenal og PSG eru komin áfram en það ræðst í lokaumferðinni hvort þeirra vinnur riðilinn.

Mesta spennan er í B-riðli en fyrir lokaumferðina eiga þrjú lið möguleika á að komast áfram í 16-liða úrslit.

Besiktas náði í stig gegn Benfica, þrátt fyrir að hafa lent 0-3 undir eftir hálftíma leik. Tyrkirnir gáfust ekki upp og jöfnuðu með þremur mörkum í seinni hálfleik.

Napoli og Dynamo Kiev gerðu markalaust jafntefli í hinum leik riðilsins.

Benfica er með átta stig í 1. sæti riðilsins, jafn mörg og Napoli sem er í 2. sæti. Besiktas er í 3. sætinu með sjö stig en Dynamo Kiev í því fjórða með tvö stig. Í lokaumferðinni tekur Benfica á móti Napoli og Besiktas sækir Dynamo Kiev heim.

Lokastaðan í C-riðli liggur fyrir eftir leiki kvöldsins.

Barcelona vann 0-2 sigur á Celtic og tryggði sér þar með sigur í riðlinum. Celticn endar í 4. sætinu.

Manchester City tekur 2. sætið en liðið gerði 1-1 jafntefli við Borussia Mönchengladbach í kvöld.

Þótt það gangi brösuglega hjá Atlético Madrid í spænsku úrvalsdeildinni gengur liðinu allt í haginn í Meistaradeildinni.

Strákarnir hans Diego Simeone unnu 2-0 sigur á PSV Eindhoven í kvöld og hafa þar með unnið alla fimm leiki sína í D-riðli. Kevin Gameiro og Antonie Griezmann skoruðu mörkin í seinni hálfleik. Atlético Madrid er með fullt hús stiga (15) á toppi riðilsins.

Í hinum leik riðilsins vann Rostov sögulegan 3-2 sigur á Bayern München.

Bayern endar í 2. sæti riðilsins og Rostov í því þriðja og fer þar með í Evrópudeildina. PSV rekur lestina með aðeins eitt stig.

Úrslit kvöldsins:

A-riðill:

Arsenal 2-2 PSG

0-1 Edinson Cavani (18.), 1-1 Olivier Giroud, víti (45+1.), 2-1 Marco Veratti, sjálfsmark (60.), 2-2 Lucas Moura (77.).

Ludogorets 0-0 Basel

B-riðill:

Besiktas 3-3 Benfica

0-1 Goncalo Guedes (10.), 0-2 Nélson Semedo (25.), 0-3 Ljubomir Fejsa (31.), 1-3 Cenk Tosun (58.), 2-3 Ricardo Quaresma (83.), 3-3 Vincent Aboubakar (89.).

Napoli 0-0 Dynamo Kiev

C-riðill:

Celtic 0-2 Barcelona

0-1 Lionel Messi (24.), 0-2 Messi, víti (55.).

Gladbach 1-1 Man City

1-0 Raffael (23.), 1-1 David Silva (45+1.).

Rauð spjöld: Lars Stindl, Gladbach (51.), Fernandinho, Man City (63.).

D-riðill:

Rostov 3-2 Bayern München

0-1 Douglas Costa (35.), 1-1 Sardar Azmoun (44.), 2-1 Dmitri Poloz, víti (49.), 2-2 Juan Bernat (52.), 3-2 Christian Noboa (66.).

Atlético Madrid 2-0 PSV

1-0 Kevin Gameiro (55.), 2-0 Antoine Griezmann (66.).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×