Fótbolti

Birkir Bjarnason: Veit ekki hvað gerðist í seinni hálfleik

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Birkir sækir hér að marki í fyrri hálfleik.
Birkir sækir hér að marki í fyrri hálfleik. Vísir/Vilhelm
Birkir Bjarnason átti ekki skýringu á því hvað hefði gerst hjá íslenska landsliðinu í stöðunni 2-0 gegn Lettlandi í undankeppni EM 2016 í kvöld. Íslenska liðið spilaði fyrri hálfleikinn vel en gaf mikið eftir í seinni hálfleik og þurfti að lokum að sætta sig við 2-2 jafntefli.

"Við byrjuðum mjög vel og fyrri hálfleikurinn var mjög fínn. Við spiluðum mjög vel, vorum ákveðnir og sóttum stíft.

"En ég veit ekki hvað gerðist í seinni hálfleik. Það er erfitt að segja, við verðum að kíkja á myndbandið og sjá hvað gerðist," sagði Birkir eftir leik. Hann segir að íslenska liðið hafi ekki verið of afslappað í stöðunni 2-0.

Það fjaraði undan Birki í seinni hálfleik.Vísir
"Nei, ég held ekki. Eins og ég sagði, þá get ég ekki komið með neinar útskýringar núna. Þetta á ekki að gerast, við vorum alltof slakir í seinni hálfleik," sagði Birkir sem sagði Lettana hafi komið sér aðeins á óvart í seinni hálfleiknum þegar þeir skoruðu tvö mörk og áttu möguleika á að gera sigurmarkið.

"Já, þeir voru góðir. Það var engin pressa á þeim og þeir spiluðu góðan bolta og unnu alltof marga seinni bolta."

Íslenska liðið lék án fyrirliða síns, Arons Einars Gunnarssonar, í dag. Birkir segir að fjarvera hans hafi ekki haft úrslitaáhrif í leiknum.

"Við erum með leikmenn sem eiga að geta komið inn. Við vorum ekkert slakir þótt Aron Einar væri ekki á miðjunni. Svona er þetta bara stundum," sagði Birkir sem segir að íslenska liðið stefni enn á að vinna riðilinn en það mætir Tyrklandi í lokaleik sínum í undankeppninni á þriðjudaginn.

"Við viljum vinna þennan riðil og höfum sagt það. Ef það á að gerast þurfum við líklega að vinna leikinn gegn Tyrkjum," sagði Birkir að endingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×