Fótbolti

Birkir Bjarna á skotskónum í sigri Pescra

Anton Ingi Leifsson skrifar
Birkir skoarði þriðja mark Pescara í dag.
Birkir skoarði þriðja mark Pescara í dag. Vísir/Vilhelm
Birkir Bjarnason var á skotskónum í öruggum sigri Pescara á Entalla í ítölsku B-deildinni í fótbolta. Birkir skoraði þriðja markið af fimm.

Marco Sansovini skoraði fyrstu tvö mörk leiksins fyrir Pescara, en Eric Lanini minnkaði muninn fyrir Entella. Þá voru einungis átján mínútur liðnar.

Birkir bætti við þriðja markinu fyrir hlé og þannig stóðu leikar í hálfleik. Marco Sansovini innsiglaðu þrennu sína í síðari hálfleik og Federico Melchiorri bætti við fimmta markinu.

Gaetano Masucci minnkaði muninn fyrir Entella, en lokatölur 5-2 sigur Pescara.

Pescara er eftir leikinn í sjöunda sæti deildarinnar, en Entella er í nítjánda sæti af 22 liðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×