Fótbolti

Birkir: Sérstakt að koma aftur inn í búningsklefann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
„Það var gott að koma aðeins heim aftur,“ sagði laufléttur Birkir Bjarnason fyrir æfingu íslenska liðsins á Maksimir-vellinum í dag.

Íslenska liðið var þá tiltölulega nýlent í Zagreb eftir góða daga í Parma á Ítalíu.

Birkir lék auðvitað um árabil á Ítalíu sem hann lítur nánast á sem sitt annað heimili. „Maturinn var frábær og veðrið gott.“

Það var verulega góð stemning í íslenska liðinu á æfingunni í dag og menn virðast tilbúnir í átökin á morgun en þeir sem spiluðu umspilsleikinn fræga hér fyrir þremur árum eru ekki búnir að gleyma honum.

„Við erum búnir að undirbúa okkur vel og örugglega fínt að hafa verið þar frekar en hér. Það var mjög sérstakt að koma hingað aftur. Sérstaklega að koma inn í klefa. Ég man vel eftir því hvernig þetta var hérna síðast,“ segir Birkir.

„Við lærðum mjög mikið af þeim leik. Það mun enginn gleyma honum. Ég vil nú ekki segja að við séum komnir til að hefna en við viljum gera betur.“

Í annað sinn í þessari undankeppni mun íslenska liðið spila útileik fyrir tómu húsi.

„Það er fínt fyrir okkur að hafa enga áhorfendur. Þeir eru auðvitað smáklikkaðir hérna. Ég held að þetta sé verra fyrir þá.“

Sjá má viðtalið við Birki í heild sinni hér að ofan.


Tengdar fréttir

Var ölvaður undir stýri en spilar samt á móti Íslandi

Króatíski landsliðsmaðurinn Domagoj Vida var handtekinn síðasta föstudag fyrir að aka ölvaður í Úkraínu þar sem hann spilar. Sú uppákoma hefur engin áhrif á stöðu hans hjá króatíska liðinu.

Æfðu í rigningunni án Ara Freys

Allir leikmenn íslenska landsliðsins taka nú þátt í æfingu á Maksimir-vellinum fyrir utan Ara Frey Skúlason.

Króatar munu ekki labba yfir Íslendinga

Króatískur blaðamaður segir að mikil virðing sé borin fyrir íslenska landsliðinu og allir eigi von á hörkuleik á morgun. Engir áhorfendur verða á leiknum og óljóst hvaða áhrif það mun hafa á króatíska­ liðið sem ætlar sér st




Fleiri fréttir

Sjá meira


×