Lífið

Birgitta Haukdal eignaðist stúlku

Bjarki Ármannsson skrifar
Birgitta og Benedikt bjuggu í Barcelona á Spáni um árabil en fluttu aftur til Íslands í fyrra.
Birgitta og Benedikt bjuggu í Barcelona á Spáni um árabil en fluttu aftur til Íslands í fyrra. Vísir/Anton
Söngkonan Birgitta Haukdal og eiginmaður hennar Benedikt Einarsson lögmaður eignuðust stúlku á laugardaginn. Litla stúlkan var rúmlega tólf merkur og 49,5 sentimetrar.

„Hún er lítil, nett og fullkomin,“ sögðu þau í skilaboðum til vina og vandamanna. Birgitta og Benedikt, sem gengu í það heilaga árið 2008, eiga fyrir soninn Víking Brynjar sem er sex ára.

Birgitta, sem hefur um árabil verið ein vinsælasta söngkona landsins, hefur setið við skriftir en hún sendi frá sér barnabækur á árinu um stúlkuna Láru.


Tengdar fréttir

Birgitta flutt heim

Söngkonan Birgitta Haukdal er flutt aftur heim til Íslands.

Birgitta Haukdal: Fósturmissirinn tók mikið á

Birgitta Hauk­dal prýðir forsíðu júlí tölu­blaðs MAN sem kem­ur út á morg­un. Birgitta á von á sínu öðru barni í októ­ber en það reynd­ist ekki þrauta­laust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×